Rannís
7.3.2006
Málþing um mótun vísinda- og tæknistefnu 2006 - 2009
Vísinda- og tækniráð boðar til málþings um mótun vísinda- og tæknistefnu 2006 - 2009 þriðjudaginn 14. mars kl. 13:00 á Hótel Loftleiðum.
Á málþinginu verða kynnt drög að stefnumótun Vísinda- og tækniráðs. Framsögu flytja Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Gunnar Páll Pálsson formaður VR og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar Háskólans í Reykjavík.
Fjórar málstofur fjalla um drögin og framsöguerindi. Að loknum málstofum eru almennar umræður.
Sjá dagskrá í heild hér.


English




