Rannís
9.3.2006
Stjörnu - Oddi hlýtur nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráð
Sigmar Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Stjörnu - Odda og eiginkona hans Jóhanna Ástvaldsdóttir veittu í morgun viðtöku nýsköpunarverðlaunum Rannís og Útflutningsráðs. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin.
Rannís og Útflutningsráð veittu sín fyrstu nýsköpunarverðlaun árið 1994 þegar Vaki hf. fékk þau. Á þeim tíu árum sem liðin eru hafa nokkur framúrskarandi fyrirtæki fengið nýsköpunarverðlaunin. Sem dæmi má nefna fyrirtæki eins og Hugvit, Íslenska erfðagreiningu, Flögu, Bláa lónið, Stofnfisk og CCP.
Rannís og Útflutningsráð hafa leitað tilnefninga um verðug fyrirtæki bæði meðal starfsmanna sinna en einnig til utanaðkomandi. Nefndin notar nokkra þætti til viðmiðunar sem fyrirtækin fá einkunn fyrir; hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og árangur á markaði og hvort fyrirtækið hafi náð sölusamningum. Metnir eru möguleikarnir á hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.
Það er niðurstaða Rannís og Útflutningsráðs að fyrirtækið Stjörnu – Oddi hljóti nýsköpunarverðlaun ársins 2006.
Stjörnu-Oddi var stofnað árið 1985, þá sem ráðgjafarfélag þar sem stofnendur tóku að sér einstaka ráðgjafaverkefni á erlendum vettvangi.
Þegar Sigmar Guðbjörnsson og eiginkona hans Jóhanna Ástvaldsdóttir fluttu til landsins árið 1992 eftir 15 ára búsetu erlendis, hófst núverandi starfsemi félagsins, það er þróun og framleiðsla á mælitækjum sem eru það lítil og handhæg að hægt er að setja þau á fiska.
Hugmyndin var einföld: Ef íslenskir rannsóknaraðilar gætu notað slíka vöru og hún prófuð við íslenskar aðstæður þá væru góðar líkur á að erlendir aðilar gætu einnig notað vöruna. Öflugur heimamarkaður og góð samskipti við rannsóknaraðila og stofnanir skiptu sköpum fyrir Stjörnu-Odda.
Útflutningur og erlent samstarf hófst tiltölulega snemma hjá félaginu.
Árið 1999 urðu straumhvörf í sögu félagsins. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins kom að félaginu ásamt 11 útgerðarfélögum auk annarra fjárfesta. Hafist var handa við þróun á neðansjávarmerkingarbúnaði og nýrri kynslóð af merkjum sem byggðu á reynslu fyrri ára.
Árin 1999 - 2001 voru kostnaðarsöm enda var það ætlunin að nýta það fjármagn sem kom inn. Frá árinu 2002 hefur Stjörnu-Oddi aukið veltuna og reksturinn skilað hagnaði. Á árinu 2004 velti fyrirtækið 104 milljónum króna, þar sem nærri 90% teknanna komu erlendis frá.
Starfsmenn eru í dag 12 og ráðgert er að fjölga þeim upp í 15 á árinu. Vörur félagsins hafa verið fluttar til 45 landa og traust viðskiptasambönd hafa myndast þar sem kaupendur halda tryggð við Stjörnu – Odda.
Félagið hefur notið stuðnings Rannís við rannsóknir og þróun og Útflutningsráðs við markaðsverkefni.
Félagið hefur ávallt verið rekið með varfærni. Framundan er að efla félagið og láta það vaxa enn frekar á næstu árum. Fjárfestigar í vöruþróun verða auknar og ekki síst í framleiðslu, þar sem stefnan er sett á að auka sjálfvirkni í framleiðslu. Án efa er á næstunni frekari tíðinda að vænta frá Stjörnu-Odda.


English




