Rannís
4.4.2006
Tillögur til nýskipaðs Vísinda- og tækniráðs
,,Í framtíðarsýn Vísinda- og tækniráðs er Ísland samfélag í fremstu röð með alþjóðlegu yfirbragði.Það byggir á mannauði og menningu," segir í inngangsorðum framtíðarsýnar fráfarandi Vísinda- og tækniráðs sem lagði fyrir helgi fram drög að stefnumótun vísinda- og tæknimála 2006 - 2009 í hendur nýskipaðs Vísinda- og tækniráðs.
Mannlíf einkennist af lífsgæðum, heilbrigði, sterkri siðvitund og öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi. Þar eru hagstæð skilyrði til að stunda vísindarannsóknir og tækniþróun og þekking er hagnýtt til hvers kyns nýsköpunar í atvinnulífi og opinberri þjónustu. Fjármunum er varið er til menntunar, vísindarannsókna, tækniþróunar og nýsköpunar og þeir skila sér í félagslegum og efnahagslegum ávinningi.
Samkeppnisstaða og velsæld þjóða á tímum alþjóðavæðingar ræðst að mati ráðsins fyrst og fremst af getu þeirra til að líta fram á veg, koma auga á tækifæri og nýta þekkingu með skipulegum hætti. Alþjóðavæðing hefur í för með sér harðnandi samkeppni en opnar um leið möguleika til að skapa verðmæti sem byggja á góðum hugmyndum og sérhæfðri þekkingu. Lykill að árangri er sýn til framtíðar og dugmikið, velmenntað fólk sem metur og hagnýtir tækifæri sem gefast við hraðfara tæknilegar, þjóðfélagslegar og markaðslegar breytingar. Í því skyni þarf að skipuleggja samræmda sókn ríkis og atvinnulífs er hafi það markmið að Ísland verði meðal fremstu þjóða í árangri í vísindalegum og tæknilegum framförum og þar verði öflugt
Sjá tillögur í heild hér (pdf-skjal)


English




