Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Greining » Fréttir

Greining

23.6.2010

Rannsóknavogin farin af stað

Rannís hefur nýverið opnað fyrir Rannsóknavogina, sem er könnun send til íslenskra fyrirtækja og stofnana um rannsókna- og þróunarstarfsemi þeirra. Hafa þátttakendur í úrtakinu að þessu sinni fengið tölvupóst með beiðni um þátttöku. Þátttakendur eru hvattir til að hafa samband við starfsfólk Rannís ef nánari skýringa er óskað um tilgang og innihald könnunarinnar.

Allt frá árinu 1971 hefur Rannís aflað gagna um rannsókna- og þróunarstarfsemi íslenskra fyrirtækja og stofnana í svokallaðri Rannsóknarvog.  Könnunin er unnin eftir forskrift OECD og er framkvæmd í samvinnu við OECD, Eurostat og aðrar systurstofnanir á Norðurlöndunum.  Niðurstöðurnar nýtast stefnumótandi aðilum á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar.  Þær eru auk þess eitt besta tæki til alþjóðlegs samanburðar á rannsóknum og þróun sem völ er á.

Niðurstöður úr síðustu könnun má sjá í þartilgerðu hefti ásamt öðrum upplýsingum um menntun Íslendinga, einkaleyfasókn og birtingu vísindagreina.

Fréttir - RSS

  • Rannís
<