Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

RANNÍS: Tölfræði

Hagtölur

Greiningarsvið Rannís annast gagnaöflun, úrvinnslu, greiningu og miðlun upplýsinga um vísindarannsóknir, tækniþróun og nýsköpun.

Greiningarsviðið gerir athuganir á þekkingarsamfélaginu, innviðum þess og þróun, auk þess að meta áhrif vísinda og nýsköpunar á samfélagið. Gerðar eru bæði sviðs- og svæðisbundnar athuganir sem ná til vísinda, vísindamenntunar, tækniþróunar, nýsköpunar og tengdra sviða.

Rannís kappkostar að birta tölfræði sína á rafrænu formi og í útgáfum sínum.


Lykiltölur

  • Íslendingar vörðu um 35 milljörðum króna til rannsókna og þróunar árið 2007. Það samsvarar tæplega 2,7% af vergri landsframleiðslu.
  • Árið 2007 var stærstum hluta útgjalda til rannsókna og þróunar varið til heilbrigðismála eða um 32%. Varið var um 11,4 milljörðum króna til þessara mála. Til viðbótar var unnið að grunnrannsóknum á sviði læknisfræði fyrir um 1,6 milljarða króna og því 13 milljörðum varið til rannsókna á sviði heilbrigðismála Til samanburðar var um 9,7% af heildargjöldum varið til fiskveiða og landbúnaðar auk fiskiðnaðar eða um 3,4 milljörðum króna.
  • Hlutur fyrirtækja í rannsóknum á sviði heilbrigðismála nam um 78% af heildar umfangi á sviðinu. Þáttur fyrirtækja á sviði heilbrigðismála nemur 52% af heildar framlögum fyrirtækja til rannsókna á árinu 2007.
  • Ísland er í sjötta sæti af ríkjum OECD hvað varðar útgjöld til rannsókna og þróunar á árinu 2007 í hlutfalli við verga landsframleiðslu.  Ísland fylgir þar á eftir Svíþjóð, Finnlandi, Japan, Kóreu og Sviss. Ísland fellur niður um 1 sæti frá 2005.

 Sjá útgáfur í pdf

Rannsóknir og þróunarstarf á Íslandi 2009

Rannsóknir og þróun - Tölfræði: Útgáfa Rannís 2007


Slóð:

Forsíða » Greining » Hagtölur

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta