Nýsköpun
Nýsköpun er ný eða marktækt betri afurð (þjónusta eða hlutur), framleiðsluferli, leið til sölu- eða markaðssetningar, stjórnunaraðferð eða skipulagsfyrirkomulag innan fyrirtækis eða stofnunnar. Nýsköpunin getur ýmist verið ný fyrir tiltekið fyrirtæki, land, markaðssvæði eða heiminn allan. Til þess að teljast nýsköpun verður afurðin, ferlið eða aðferðin að komast í gagnið. Þannig geta nýjar afurðir ekki talist nýsköpun nema þær fari á markað. Hið sama má segja um ný ferli og aðferðir. Þær teljast aðeins nýsköpun sé þeim hrint úr vör innan fyrirtæksins eða stofnunarinnar.
Til nýsköpunarstarfsemi telst öll sú starfsemi, hvort sem hún er á sviði vísinda, tækni, stjórnunar, fjármála eða markaðsmála, sem ætlað er að leiða til nýsköpunar.
Frekari skilgreiningar á nýsköpun má finna í handbók OECD (Oslo Manual). Hér er vísað á aðra útgáfu. Þriðja útgáfan kom út í október 2005 og er aðeins aðgengileg gegn gjaldi.
Rannís framkvæmir með reglulegu millibili könnun á nýsköpunarvirkni íslenskra fyrirtækja, svokallaða Nýsköpunarvog. Ísland er eitt fjölmargra Evrópulanda sem framkvæmir þessa könnun og vinnur í nánu samstarfi við Eurostat (Hagstofu Evrópusambandsins) um þróun aðferðafræði og úrvinnslu niðurstaðna. Niðurstöðurnar eru langveigamestu upplýsingarnar sem löndin hafa til að fylgjast með þróun og áhrifum nýsköpunar í heimalöndunum og jafnframt mikilvægt tæki til alþjóðlegs samanburðar.
Útgefið efni um nýsköpun
2010 Nýsköpun íslenskra fyrirtækja - Íslensk samantekt byggð á European Innovation Scoreboard 2009.
2009 European Innovation Scoreboard 2009.
2008 European Innovation Scoreboard 2008. Greining á frammistöðu Evrópuþjóða í nýsköpun.
2007 European Innovation Scoreboard 2007.
EIS 2007 Interactive Benchmarking. Myndræn framsetning á Evrópsku stigatöflunni um nýsköpun.
2006 European Innovation Scoreboard 2006.
2004 Innovation in Europe. Results for the EU, Iceland and Norway. Niðurstöður CIS3.
2001 Statistics on Innovation in Europe. Niðurstöður CIS2.
1993-2001 Ýmsar niðurstöður byggðar á CIS1 og CIS2 má sjá á heimasíðu EIMS (European Innovation Monitoring System).

English

