Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Greining » Nýsköpunarvog

Nýsköpunarvog

Nýsköpunarvog 2009 - The Community Innovation Survey (CIS)

Það skiptir miklu máli fyrir opinbera stefnumótun í nýsköpun að til séu góðar og samanburðarhæfar upplýsingar um stöðu mála. Í könnun Rannís, svokallaðri Nýsköpunarvog, er ýmissa gagna um nýsköpunarvirkni íslenskra fyrirtækja aflað með reglulegu millibili.  Ísland er eitt fjölmargra Evrópulanda sem framkvæmir þessa könnun og vinnur í nánu samstarfi við Eurostat (Hagstofu Evrópusambandsins) um þróun aðferðafræði og úrvinnslu niðurstaðna.  Niðurstöðurnar eru langveigamestu upplýsingarnar sem löndin hafa til að fylgjast með þróun og áhrifum nýsköpunar í heimalöndunum og jafnframt mikilvægt tæki til alþjóðlegs samanburðar.

Í Nýsköpunarvoginni er m.a. fjallað um nýsköpunarverkefni fyrirtækja, og þá út frá tegundum verkefnanna því þeim er skipt niður í svokallaða afurða-, aðferða-, markaðs- og skipulagsnýsköpun.  Einnig er sérstaklega fjallað um nýsköpun í þágu umhverfisins.  Fjallað er um útgjöld til nýsköpunar, markmiðin með nýsköpuninni og einnig nýsköpunarverkefni sem ekki hafa fengið farveg innan fyrirtækjanna.

Könnunin var fyrst framkvæmd árið 1992.  CIS2 var gerð árið 1996 og CIS3 árið 2001. Frá árinu 2000 hefur tölfræðin úr Nýsköpunarvoginni verið notuð fyrir Stigatöflu evrópskrar nýsköpunar (European Innovation Scoreboard). Fjórðu könnuninni var hleypt af stokkunum árið 2005.  Nú er unnið að CIS 2008 og gert er ráð fyrir að fyrstu niðurstöður könnunarinnar verði birtar á vormánuðum 2010.

Aðferðir við öflun og úrvinnslu gagna eru byggðar á handbók OECD og Eurostat um nýsköpun (Oslo Manual).


Nánari upplýsingar veitir:  Elva Brá Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði.


  • Rannís
<