Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannsóknarvog

Rannsóknarvog 2009

RANNÍS hefur safnað saman upplýsingum um rannsókna- og þróunarstarfsemi frá árinu 1971 í svokallaðri Rannsóknarvog. Með henni er gagna um umfang og viðgang rannsókna og þróunar aflað annað hvert ár í samstarfi við OECD, Eurostat og ýmsar systurstofnanir á Norðurlöndum. Niðurstöðurnar nýtast stefnumótandi aðilum á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Þær eru auk þess eitt besta tæki til alþjóðlegs samanburðar á rannsóknum og þróun sem völ er á.

Nú á sér stað gagnasöfnun um rannsóknir, þróun og nýsköpun á árinu 2009, en hún fer fram með nýstárlegum hætti að þessu sinni.  Allir þátttakendur í könnuninni, þ.e. fyrirtæki og stofnanir, fá sendan aðgang að rafrænu eyðublaði.  Að lokinni útfyllingu fara svör inn í gagnagrunn sem aðeins Rannís hefur aðgang að.   

Úrvinnsla upplýsinganna mun eiga sér stað í byrjun árs 2010 og niðurstöður síðan birtar í lok árs.  Niðurstöður úr síðustu könnun má sjá í þartilgerðu hefti ásamt öðrum upplýsingum um menntun Íslendinga, einkaleyfasókn og birtingu vísindagreina.


Sé nánari upplýsinga um könnunina þörf má gjarnan hafa samband við neðangreinda aðila. 

Elva Brá Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Rannís, elva@rannis.is, sími: 515-5812.

Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðstjóri greiningarsviðs Rannís, thorvald@rannis.is, sími: 515-5808.



Slóð:

Forsíða » Greining » Rannsóknarvog

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta