Rannsóknavog
Rannís hefur safnað saman upplýsingum um rannsókna- og þróunarstarfsemi frá árinu 1971 í svokallaðri Rannsóknarvog. Með henni er gagna um umfang og viðgang rannsókna og þróunar aflað annað hvert ár í samstarfi við OECD, Eurostat og ýmsar systurstofnanir á Norðurlöndum. Niðurstöðurnar nýtast stefnumótandi aðilum á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Þær eru auk þess eitt besta tæki til alþjóðlegs samanburðar á rannsóknum og þróun sem völ er á.
Gagnasöfnun um rannsóknir, þróun og nýsköpun fer fram annað hvort ár. Allir þátttakendur í könnuninni, þ.e. fyrirtæki og stofnanir, fá sendan aðgang að rafrænu eyðublaði. Að lokinni útfyllingu fara svör inn í gagnagrunn sem aðeins Rannís hefur aðgang að.
Þegar úrvinnslu upplýsinganna lýkur í hvert sinn, er gefið út hefti á íslensku og ensku með niðurstöðum og öðrum upplýsingum um menntun Íslendinga, einkaleyfasókn og birtingu vísindagreina. Hægt er að nálgast útgáfurnar hér.
Sé nánari upplýsinga um könnunina þörf má gjarnan hafa samband við neðangreinda aðila.
Elva Brá Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Rannís.
Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðsstjóri greiningarsviðs Rannís.

English

