Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Marie Curie - Þátttaka einstaklinga

Þátttökumöguleikar einstaklinga í Mannauðsáætlun Evrópusambandsins

Einstaklingar sem áhuga hafa á þátttöku í mannauðsáætlun Evrópusambandsins geta annars vegar sótt um störf eða þátttöku á námskeiðum/ráðstefnum hjá stofnunum eða fyrirtækjum sem þegar hafa hlotið styrki (sjá http://www.mc-opportunities.eu.int) eða úbúið sjálfir umsóknir í eftirfarandi flokkum:

Einstaklingsstyrkir innan Evrópu (Intra-European Fellowships)
Einstaklingar sækja um styrk í samráði við rannsóknastofnun eða fyrirtæki í Evrópu þar sem það hefur fengið vilyrði fyrir rannsóknarstöðu til eins eða tveggja ára.
Frekari upplýsingar
Handbók

Styrkir til rannsóknarstarfa utan Evrópu (Outgoing International Fellowships)
Einstaklingar sækja um styrk í samráði við rannsóknarstofnun eða fyrirtæki utan Evrópu, sem er reiðubúið að veita honum tímabundna rannsóknarstöðu sem og stofnun/fyrirtæki innan Evrópu þangað sem einstaklingurinn snýr aftur eftir rannsóknardvölina.  Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að styrkþegi snúi aftur til Evrópu eftir 1-2 ára dvöl.
Frekari upplýsingar
Handbók

Styrkir til rannsóknafólks utan Evrópu til starfa í álfunni (Incoming International Fellowships)
Veittir eru styrkir til rannsóknafólks frá löndum sem ekki eiga aðild að áætluninni til starfa í stofnun sem eiga aðild að henni.  Einstaklingar sækja um í samráði við rannsóknarstofnun/-fyrirtæki.  Lengd dvalar er 1-2 ár.
Frekari upplýsingar
Handbók

Heimkomustyrkir innan Evrópu (European Reintegration Grants)
Styrkir eru veittir til vísindafólks sem tekið hefur þátt í Mannauðsáætluninni í a.m.k. tvö ár til að snúa til síns heima.  Einstaklingur og stofnun sækja sameiginlega um.
Frekari upplýsingar
Handbók

Alþjóðlegir heimkomustyrkir (International Reintegration Grants)
Styrkir eru veittir til vísindafólks sem starfað hefur utan þátttökuríkja áætlunarinnar í a.m.k. fimm ár og vill taka upp störf í einu þessara ríkja.  Einstaklingur og stofnun sækja sameiginlega um og veittir eru styrkir til a.m.k. tveggja ára.
Frekari upplýsingar

 

Nánari upplýsingar og aðstoð veita:

Ásta Sif Erlingsdóttir, landstengill við Mannauðsáætlun ESB
Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands
astasif@rthj.hi.is, Sími: 525 4227

Hjördís Hendrikdóttir, landstengill við 6. rannsóknaáætlun ESB
forstöðumaður alþjóðasviðs RANNÍS
hjordis@rannis.is, sími: 515 5809

Halldór Jónsson, stjórnarnefndarfulltrúi í Mannauðsáætlun ESB
Rannsóknasvið Háskóla Íslands
dorij@hi.is, sími: 525 5337

Elísabet M. Andrésdóttir, sérfræðingur við Mannauðsáætlun ESB
Rannsóknamiðstöð Háskólans í Reykjavík
elisabet@ru.is, sími 510 6269

 




Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta