Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands, eða Rannís, veitir stuðning við rannsóknir, rannsóknatengt nám, tækniþróun og nýsköpun. Stofnunin er náinn samstarfsaðili Vísinda- og tækniráðs og hefur það hlutverk að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu ráðsins. Rannís aðstoðar vísinda- og tæknisamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum auk þess að að kynna áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag.
Forsenda aukinna lífsgæða er öflun þekkingar og aukinn skilningur á okkur sjálfum og samfélaginu sem við búum í. Efnahagslegar framfarir byggja á nýsköpun, ekki síst þar sem rannsóknir og þróunarstarf er forsenda. Rannís er mikilvægur hlekkur í þeirri keðju sem treystir stoðir íslensks þekkingarþjóðfélags til framfara og aukinna lífsgæða.
Rannís er heyrir undir menntamálaráðherra og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003. Hér má sækja yfirlit yfir skipan yfirstjórnar vísinda- og tæknimála til glöggvunar. Forstöðumaður Rannís er Hallgrímur Jónasson.
Starfsemi Rannís skiptist í þrjú meginsvið – umsýslu sjóða, greiningu og alþjóðastarf – en sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu. Sjá skipurit Rannís hér.
Markmiðin nást því aðeins að kynningarstarf á rannsóknastarfseminni sé umfangsmikið, en Rannís leggur áherslu á öfluga heimasíðu ásamt því að annast kynningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki um möguleika á styrkjum og stuðla að samvinnu um rannsóknarverkefni innan lands og utan.
Til að styðja við kynningarstarf á rannsóknum og nýsköpun og gera áhrif vísindarannsókna sýnileg, stendur Rannís fyrir ýmsum viðburðum eins og Rannsóknaþingi, Haustþingi og Nýsköpunarþingi, að ógleymdri Vísindavöku og Vísindakaffi. EInnig á Rannís þátt í að hvetja vísindafólk til frekari dáða með viðurkenningum á borð við Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs í samvinnu við ráðið og Nýsköpunarverðlaun í samvinnu við Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
Fréttabréf Rannís
Ársskýrslur
Hér má nálgast síðustu ársskýrslur Rannís á rafrænu formi

English




