Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapi væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987, - í fyrsta sinn á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands. Markmiðið með veitingu Hvatningarverðlaunanna er að hvetja vísindamenn til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindamanna. Verðlaunin eru tvær milljónir króna. Árlega er auglýst eftir tilnefningum til verðlaunanna, sem eru afhent á Rannsóknaþingi Rannís að vori.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2011 voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís 8. júní 2011.
Næst verður óskað eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna 2012 í upphafi árs. Tilnefningum ásamt upplýsingum um feril tilnefndra skal skila í tölvupósti á rannis@rannis.is.
Upplýsingar um handhafa Hvatningarverðlaunanna HÉR
Dómnefnd
Dómnefnd Hvatningarverðlaunanna er skipuð fyrri handhöfum verðlaunanna. Dómnefndina 2011 skipuðu þau Áslaug Helgadóttir aðstoðarrektor rannsókna hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, sem jafnframt gegndi stöðu formanns dómnefndar, Jakob K. Kristjánsson Prokaria, Freysteinn Sigmundsson hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Valur Ingimundarson prófessor í sagnfræði við HÍ, Hilmar B. Janusson Össuri hf og Unnur Anna Valdimarsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum hjá HÍ.
Tilnefningar til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamansins skal fylgja tilnefningu.
Við mat á tilnefningum er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd.
Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamannsins vegna ummönnunar barna.

English




