Nýsköpun í opinberum rekstri
Verðlaun fyrir nýsköpun í opinberum rekstri -
Ráðstefna 3. nóvember 2011
Fjármálaráðuneytið, í samvinnu við Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannís, veitti verðlaun fyrir nýsköpun í opinbera geiranum, að undangengnu tilnefningarferli í samráði við forstöðumenn ríkisstofnana. Þessi aðilar hafa tekið höndum saman um að draga athygli að nýsköpun og þróunarverkefnum í starfsemi hins opinbera og stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri á Íslandi. Verðlaunin voru veitt á ráðstefnu um nýsköpun í opinberum rekstri sem haldin var 3. nóvember 2011. Hér að neðan er dagskrá ráðstefnunnar ásamt tenglum í glærur og upptökur af fyrirlestrum.
Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri - Nýjar lausnir við nýjum áskorunum
- Steingrímur J Sigfússon, fjármálaráðherra.
Ávarp og afhending nýsköpunarverðlauna og viðurkenninga. Upptaka af ræðu - Ómar H. Kristmundsson, prófessor í stjórnsýslufræðum. Upptaka
Hvers vegna nýsköpun hjá hinu opinbera? Opnun upplýsingagáttar um nýsköpun í opinberum rekstri. - Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannís. Mikil nýsköpun en mörg ljón í veginum: Norræn forkönnun á nýsköpun í opinberum rekstri 2010 Upptaka
- Edwin Lau, sérfræðingur hjá OECD. Innovation in the public sector from an international perspecive. Upptaka
Fundarstjóri var Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar
Í nýrri norrænni rannsókn kemur fram að um 90% opinberra stofnana á Íslandi stunda nýsköpun af einhverju tagi. Þetta bendir til mikillar grósku og að mörg tækifæri séu nýtt til umbóta í opinberum rekstri. Þessi nýsköpunarverkefni þarf að gera sýnileg og kynna öðrum til eftirbreytni. Verkefnin, sem voru tilnefnd til verðlaunanna, voru síðan kynnt á ráðstefnu um nýsköpun í opinberum rekstri sem haldin var 3. nóvember 2011. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var Edwin Lau, sérfræðingur hjá OECD en stofnunin hefur á undanförnum misserum beint sjónum sínum sérstaklega að nýsköpun í opinberum rekstri.
Á ráðstefnunni 3. nóvember var jafnframt opnuð vefsíða um nýsköpunarverkefni, en þar opnast aðgangur að umfangsmikilli reynsluþekkingu og fyrirmyndum hérlendis sem erlendis til að nýta við innleiðingu nýrra hugmynda um bætta þjónustu og skilvirkni í opinberum rekstri. Verkefnin hafa því verulegt hagnýtt gildi fyrir stjórnendur opinberra stofnana. Fyrirhugað er að gera þeim verkefnum sem tilnefnd eru til nýsköpunarverðlaunana góð skil á vefsíðunni.
Hugtakið „nýsköpun“ hefur einna helst verið tengt starfsemi sprota- og frumkvöðlafyrirtækja á einkamarkaði. Nýsköpun í opinberum rekstri er hins vegar mjög þýðingarmikil, vegna umfangs hins opinbera og verkefna sem unnin eru í almannaþágu. Efnahagsástæður og niðurskurður í opinberum rekstri kallar á aukna þörf fyrir nýsköpun á þessu sviði. Til að efla nýsköpun í opinberum rekstri hefur fjármálaráðherra falið starfshópi með fulltrúum ráðuneyta og forstöðumanna að setja fram heildstæða stefnu um umbætur í ríkisrekstri með nýsköpun að leiðarljósi. Samhliða stefnunni verði sett fram aðgerðaáætlun og mun þeirri vinnu vera lokið fyrir árslok 2011.

English




