Nýsköpunarþing og Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaun Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1994 á Nýsköpunarþingi. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröflunar.
Nýsköpunarþing er haldið árlega og umfjöllunarefni hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefni Nýsköpunarþinganna hefur því ávallt verið valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar.
Nánar um Nýsköpunarverðlaun Íslands.

English




