Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Rannís » Rannsóknaþing

Rannsóknaþing

Rannsóknaþing 2011

Áskoranir á norðurslóðum - loftslagsbreytingar, umhverfi og hagræn áhrif

Miðvikudaginn 8. júní kl. 8:30-10:30 á Grand Hótel Reykjavík.

Dagskrá á pdf formi hér.
Hægt er að nálgast kynningar og ræður ráðherra með því að smella á heiti þeirra hér að neðan.

Rannsóknir á norðurslóðum skipta sífellt meira máli, ekki síst í tengslum við hnattrænar umhverfisbreytingar og áhrif þeirra á svæðinu.

Á Rannsóknarþingi 2011 eru loftslag, umhverfi og hagræn áhrif þessara þátta viðfangsefni og mikilvægi þess að rannsóknasamfélagið takist á við þá áskorun sem þessar breytingar kunna að hafa á íslenskt samfélag. Víða um heim eru mikilvægar áskoranir í rannsóknum (Grand Challenges) til umfjöllunar og mikilvægi þess að vísinda- og tækniþekkingu sé beitt við mat, og ekki síður við lausn mála sem upp kunna að koma. Ísland er engin undantekning, hér á landi er mikilvægt að rannsóknir sem snúa að norðurslóðum séu öflugar og ekki síður að Ísland sé virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.

Dagskrá

8:30   Setning Rannsóknaþings
Svandís Svavarsdóttir starfandi mennta- og menningarmálaráðherra.

8:45   Veðurfarsbreytingar á norðurslóðum
Halldór Björnsson, verkefnastjóri loftslagsrannsókna hjá Veðurstofu Íslands.

9:10   Hagræn áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum - áhrif á Íslandi
Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Háskóla Íslands.

9:30   Áhrif loftslagsbreytinga á gróðurfar á norðurslóðum
Brynhildur Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins.

9:50   Áhrif veðurfars á lífríki í hafinu umhverfis Ísland
Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar.

10:10   Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Áslaug Helgadóttir rannsóknastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands og formaður dómnefndar Hvatningarverðlaunanna gerir grein fyrir starfi dómnefndar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir verðlaunin.

Fundarstjóri: Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs.


  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<