Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannsóknir fræðslu og menntamál

Rannsóknir á sviði fræðslu- og menntamála

Meginmarkmiðið er að kortleggja umfang og eðli rannsókna og nýbreytni á sviðinu með það að leiðarljósi að auka skilning á þýðingu rannsókna og nýbreytnistarfs og ekki síst til eflingar þess. Nánar tiltekið;
•  að kortleggja umfang og eðli rannsókna og nýsköpunarstarfs á sviði fræðslu- og menntamála og vekja máls á þeim sviðum þar sem rannsóknir skortir.
•  að skoða stöðu rannsakenda með hliðsjón af ólíkum markhópum, vinnuumhverfi og vinnuferli rannsókna.
•  að kanna hvað hvetur til nýsköpunar í skólum og atvinnulífi og tengsl nýbreytnistarfs við menntarannsóknir.
•  að varpa ljósi á þýðingu og notagildi rannsókna fyrir stefnumótun og starfsemi skóla og annarra fræðsluaðila.
•  að hvetja til umræðu um rannsóknir og nýsköpunarstarf á sviði fræðslu- og  menntamála með því markmiði að efla þær.

Úttekt á rannsóknum á sviði fræðslu og menntamála var gefin út í október 2005 og hægt er að nálgast útgáfuna pdf sniði hér að neðan.

Rannsóknamiðstöð Íslands og menntamálaráðuneytið stóðu að fjármögnun úttektarinnar. Auk þeirra styrktu eftirtaldir aðilar úttektina: Kennaraháskóli Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Starfsafl.

Umsjón með verkefninu fyrir hönd Rannís er Elva Brá Aðalsteinsdóttir.

Úttektin er fjórar sjálfstæðar athuganir

Menntarannsóknir í íslenskum háskólum Stofnanatengdar menntarannsóknir Þróunarverkefni í íslenskum skólum
Þróun fræðslumála í atvinnulífinu
Samantekt Framkvæmd verkefnisins English summary

 

 



Slóð:

Forsíða » rannsóknir-menntamál

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta