Slóð:
Forsíða » Sjóðir » Aðrir sjóðir » Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða KristjánssonarMinningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Styrkir til náms í verkfræði og raunvísindum
Markmið Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar er að styrkja stúdenta með góða námshæfileika, sem einkum leggja stund á verkfræði og raunvísindanám. Að öllu jöfnu ganga nemendur í doktorsnámi fyrir styrkveitingu. Ekki er nauðsynlegt að nota sérstök umsóknareyðublöð.
Eftirfarandi atriði verða að koma fram í umsókninni:
Umsækjandi:
Nafn, kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang, sími.
Menntastofnun:
Skóli, heimilisfang, fræðasvið, aðalnámsgreinar, lokapróf (heiti, áætluð dagsetning).
Fylgiskjöl:
Náms- og starfsferill umsækjanda (curriculum vitae).
Staðfesting frá skóla um skólavist umsækjanda.
Staðfest yfirlit um námsárangur.
Meðmæli.
Önnur fylgiskjöl sem umsækjandi vill leggja fram.
Umsóknum má skila með tölvupósti til Sigurðar Brynjólfssonar, formanns sjóðsstjórnar í netfang sb@hi.is eða til:
Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins
Neshaga 16
IS-107 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Brynjólfsson, sb@hi.is, sími 525 4641.

English


