Slóð:
Forsíða » Sjóðir » Aðrir sjóðir » Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds SigurðssonarRannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar
Hinn 4. maí 2008 voru liðin 100 ár frá fæðingu Haralds Sigurðssonar bókavarðar en hann lést 1995. Á þeim degi tilkynnti ekkja hans, Sigrún Ástrós Sigurðardóttir kjólahönnuður, að í samræmi við erfðaskrá þeirra hjóna frá 1983 hefði verið stofnaður Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar. Sjóðurinn veitir styrki til umsækjenda en markmið hans er að efla rannsóknir á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni. Við mat á umsóknum um styrki úr sjóðnum verður vísindalegt gildi rannsóknarverkefnis lagt til grundvallar.
Næsti umsóknarfrestur er 30. apríl (kl. 17:00).

English


