Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Launasjóður fræðiritahöfunda » Nánar um Launasjóð fræðiritahöfunda

Nánar um Launasjóð fræðiritahöfunda

Meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi. 

Stjórn sjóðsins er skipuð af menntamálaráðherra til tveggja ára í senn. Einn fulltrúi er tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands og annar fulltrúi er tilnefndur af Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna. Formaður er skipaður án tilnefningar.

Stjórnin úthlutar árlega starfslaunum úr sjóðnum. Starfslaun eru veitt til hálfs árs eða eins árs, til tveggja ára eða þriggja. Þeir sem hljóta starfslaun skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Þá eiga starfslaunaþegar að skila skýrslu um störf sín á starfslaunatímanum eigi síðar en ári eftir að honum lýkur.

Reglur menntamálaráðherra um Launasjóð fræðiritahöfunda nr. 268/1999 


  • Rannís
  • Rannís
<