Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Launasjóður fræðiritahöfunda » Umsókn og upplýsingar

Umsókn og upplýsingar

Umsóknafrestur er til 22. mars (kl. 16:00). Tekið verður við umsóknum frá og með 15. febrúar. Allar umsóknir eru rafrænar.

Rétt til að sækja um laun úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka og verka í stafrænu formi til eflingar íslenskri menningu.

Starfslaun skulu veitt til hálfs árs, eins árs, tveggja ára eða þriggja ára. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun skulu miðast við lektorslaun II við Háskóla Íslands eins og þau eru á hverjum tíma. Þau sem taka starfslaun hjá sjóðnum skulu vera á skrá hjá stjórn sjóðsins og fá greidd starfslaun mánaðarlega að viðbættu 6% álagi. Þau skulu eiga aðild að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda.

Starfslaunaþegar skulu skila skýrslu um störf sín á starfslaunatímanum eigi síðar en ári eftir að honum lýkur. Stjórn sjóðsins má fella niður starfslaun sem veitt eru til lengri tíma en sex mánaða ef talið er að viðkomandi fræðimaður hafi ekki sinnt fræðistörfum sínum.

Hér að neðan er getið þeirra megin vinnureglna sem stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda skal fylgja við störf sín:

  1. Stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda metur hverju sinni hæfi umsækjandans og þá möguleika sem ætla má að hann hafi til að ljúka verkefni því sem hann sótti um styrk til. Við hæfismat tekur stjórn sjóðsins tillit til menntunar og reynslu umsækjanda, fyrri útgáfustarfa hans og umsagna um verk hans.
  2. Við ákvörðun um úthlutun metur stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda mikilvægi verks þess sem styrkja á og hvernig það fellur að hlutverki sjóðsins. Lýsing umsækjanda á markmiði verksins, markhópi höfundar, öðrum styrktaraðilum og væntanlegum útgefendum skal vera stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda til leiðbeiningar.
  3. Umsækjendur skulu leggja fram ítarlega verkáætlun þar sem m.a. kemur fram hvenær hefja skal verkið og hvenær því lýkur. Stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda metur hverju sinni hversu raunhæf verkáætlun umsækjanda er.
  4. Þegar ákvörðun er tekin um styrkveitingu úr sjóðnum verður bæði höfð hliðsjón af umfangi verksins og öðrum styrkjum sem umsækjandi á kost á.
  5. Stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda er heimilt að leita eftir umsögn a.m.k. tveggja sérfróðra aðila um umsóknir, telji hún þess þörf.
  6. Stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda mun í upphafi hvers styrktímabils kynna þau verk sem hlotið hafa styrk sjóðsins. Í lok styrktímabils mun stjórnin fara þess á leit við styrkþega að þeir geri rækilega grein fyrir framvindu verks svo hún geti, ef svo ber undir, birt opinberlega útdrátt úr framvindu- og lokaskýrslum styrkþega.

  • Rannís
  • Rannís
<