Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

RANNÍS: Markáætlun – Upplýsingatækni og umhverfismál

Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál

Kynningarbæklingur markáætlunar - Áherslusvið og forsendur - bæklingurinn frá 2001 er enn í fullu gildi    ,,,, lesa!    

Með bréfi dagsettu 16. febrúar 1998 fól menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, Rannsóknarráði Íslands að semja markvissa áætlun, þar sem lögð væri áhersla á tvö meginsvið í rannsóknum og þróunarstarfi, þ.e. á sviði upplýsingatækni og umhverfismála í ljósi gildis þeirra fyrir þróun íslensks þjóðfélags. Stefnt skyldi að því að Íslendingar næðu mælanlegum árangri í rannsóknum og þróun á þessum tveimur meginsviðum. Sérstök áhersla var lögð á að auka þátttöku ungs vísindafólks í þessu starfi og þverfaglega samvinnu vísindamanna. Höfð var hliðsjón af stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi upplýsingatækni og umhverfismál. Ráðuneytið lýsti yfir vilja til að beita sér fyrir því við gerð fjárlagafrumvarps að teknar verði ákvarðanir um fjárveitingar í þessu skyni án þess að þær röskuðu öðrum áætlunum Rannsóknarráðs Íslands.

Starfshópar úr atvinnulífi og rannsóknarsamfélaginu unnu drög að skilgreiningu á markáætluninni sem síðar var samþykkt af Rannsóknarráði Íslands. Heildarrammi markáætlunarinnar er 580 m. kr. til ráðstöfunar á árunum 1999 – 2004, þar af 200 m.kr. fyrstu tvö árin og 95 m.kr á ári á seinni hlutra áætlunarinnar 2001 - 2004.

Tilgangur markáætlunarinnar er:

  • að efla rannsóknir á þeim þekkingarsviðum sem telja má undirstöður upplýsingasamfélags, sjálfbærs athafnalífs og stuðlað geta að farsælli aðlögun að breyttum aðstæðum.
  • að stuðla að aukinni verðmætasköpun, fjölgun atvinnutækifæra og bættri samkeppnisstöðu fyrirtækja með hliðsjón af þeim ógnum og tækifærum sem upplýsingatæknin og ný viðhorf í umhverfismálum skapa.
  • að hvetja til aukinna samskipta atvinnulífs og stofnana um rannsóknir, þróunarstarf og aðra þekkingarmyndandi starfsemi á þessum sviðum.
  • að skapa forsendur til öflugrar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir og þróunarstarf á þessum sviðum.

Við forgangsröðun umsókna tók úthlutunarnefndin mið af faglegu mati fagráða og lét þær umsóknir njóta forgangs,

  • þar sem náin samvinna er milli þeirra sem stunda rannsóknir og ráða yfir viðeigandi sérþekkingu og þeirra sem hyggjast nota niðurstöðurnar eða ætla sér að koma þeim á framfæri og markvisst stuðla að notkun þeirra.
  • þar sem mikils ávinnings er að vænta í ljósi markmiða áætlunarinnar.
  • þar sem fleiri verkefni stuðla að samvirkni á viðkomandi sviði.
  • þar sem vísindaleg þjálfun og þáttur ungra vísindamanna er hluti af framkvæmd verkefnisins.

Vorið 1999 voru í fyrsta skipti veittir styrkir úr áætluninni. Þá voru að miklu leyti veittir styrkir til tveggja eða þriggja ára. Vorið 2000 var eingöngu lýst eftir framhaldsverkefnum. Vorið 2001 var auglýst í annað sinn eftir nýjum umsóknum, jafnframt því sem tekið var við framhaldsumsóknum og vorið 2002 var lýst eftir framhaldsumsóknum eingöngu. Vorið 2003 var auglýst eftir framhaldsumsóknum og nýjum umsóknum í þriðja skiptið. 

 

Að öllum líkindum verður eingöngu auglýst eftir framhaldsumsóknum vorið 2004 sem verður í síðasta skipti sem lýst verður eftir umsóknum í  markáætlunina 

 

 

Markáætlunarstjóri af hálfu RANNÍS er Snæbjörn Kristjánsson, verkfræðingur Tæknisjóðs.


Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Markáætlun upplýsingatækni og umhverfismál

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta