Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Nýsköpunarsjóður námsmanna » Fréttir og tilkynningar

Nýsköpunarsjóður námsmanna fréttir

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2011

Verðlaunin 2011 hlutu Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir, Katharína Lötzsch og Robert Petersen fyrir verkefni Pantið áhrifin frá Móður Jörð.

Að auki fengu fimm verkefni önnur sérstaka viðurkenningu:

  • MindGames – Hugþjálfunartölvuleikur, verkefni unnið af Hamid Pourvatan, Jóni Trausta Arasyni, Kötlu Rós Völudóttur og Ragnari Má Nikulássyni.
  • Vistland – Rannsókn á möguleikum sjálfbærni í íslenskum arkitektúr og húsagerð, verkefni unnið af Björgvin Óla Friðgeirssyni, Darra Úlfssyni, Kötlu Maríudóttur, Snorra Þór Tryggvasyni og Baldri Helga Snorrasyni.
  • Neðansjávarlágtíðnihljóðbylgjuaflgjafi, verkefni unnið af Jóni Val Valssyni.
  • Umhverfiskostnaður sem hluti af reiknilíkani jarðhitavirkjana, verkefni unnið af Kristrúnu Gunnarsdóttur.
  • Vindhraðamælingar og sambreytni vinds á Íslandi, verkefni unnið af Jóni Blöndal og Teiti Birgissyni.


Úrvalsverkefni NSN 2010

Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur aldrei veitt jafnmarga styrki og sumarið 2010, en sjóðurinn styrkti 255 verkefni sem 350 nemendur komu að. Hápunkturinn er veiting Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands til verkefna sem þykja skara fram úr. Á hverju ári er skipuð sérstök dómnefnd sem hefur það vandasama verkefni að velja verkefnin sem hljóta tilnefningu og svo verðlaunaverkefnið sjálft. Tuttugu og eitt verkefni voru send áfram til dómnefndar að þessu sinni, en að þeim unnu 34 nemar sem komu frá fjórum íslenskum háskólum, HÍ, LHÍ, HR og HA, en tveir nemar koma frá erlendum skólum. Hér er tengill í upplýsingar um verkefnin sem stjórn sjóðsins hefur valið til að keppa um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í febrúar 2011

Góðar fréttir af styrktum verkefnum úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
Verkefnið PatternFinder á markað í september 2010

Stjörnu-Oddi er þessa dagana að hefja markaðssetningu á forriti sem nefnist PatternFinder og á uppruna sinn í verkefni sem hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2007.

Verkefnið var unnið af Gunnsteini Hall meistaranema í verkfræði við Háskóla Íslands og hlaut á sínum tíma tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Í dag stundar Gunnsteinn doktorsnám í bandaríkjunum en hefur allt frá upphafi verið þátttakandi í verkefninu hjá Stjörnu-Odda.

PatternFinder er greiningarforrit til að greina hegðunarmynstur dýra. Forritið gerir vísindamönnum nú kleift að rannsaka og skoða atferli dýra á láði og legi með miklu nákvæmari og betri hætti en áður. Rafeindamerki frá Stjörnu-Odda hafa verið notuð til að fylgjast með atferli alls kyns dýra út um allan heim. Nefna má risasmokkfiska við Japan, mörgæsir á suðurpólnum og krossfiska á Nýja Sjálandi, þorsk við Ísland og Skandinavíu svo nokkur dæmi séu nefnd.

Forritið PatternFinder hefur hingað til fyrst og fremst verið hugsað fyrir rannsóknir eins og t.d.  þær sem unnar eru á Hafrannsóknarstofnun þar sem reglulega er verið að merkja fiska og safna gögnum um fiskgengd. Gögnin sem Hafrannsóknarstofnun hefur safnað í gegnum árin með rafeindamerkjum Stjörnu-Odda hafa skilað hundruðum þúsunda mælinga um hegðun einstakra fiska og jafnvel torfa. Þennan gagnafrumskóg vildu vísindamenn hjá Stjörnu-Odda geta greint betur og var Gunnsteinn ráðinn á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að hanna einhverskonar greiningarforrit sem nýta mætti á mælingarnar. Forritið sem Gunnsteinn bjó til tekur við gögnum úr rafeindamerkjum og gefur notandanum kost á að greina viðburði og leita að mynstrum í endurheimtum gögnum og ljóstra þannig upp um hegðun t.d. fiska, hegðun sem mannsaugað á erfitt með að greina í miklu magni mælinganiðurstaðna. Með samvinnu við notendur eins og Hafrannsóknastofnun fékk Stjörnu-Oddi ómetanlegt tækifæri til að þróa og prófa forritið á alvöru gögnum og tókst að sýna fram á lausnir sem eiga eftir að nýtast við frekari markaðssetningu á forritinu.


Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010 afhent á Bessastöðum 2. mars

Ásgeir Bjarnason hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010 fyrir verkefnið Súrefnis- og hjartsláttarnemi. Ásgeir stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi en var nemandi við Háskólann í Reykjavík þegar hann vann að verkefninu. Leiðbeinendur Ásgeirs voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Arfgeng heilablæðing, unnið af Birni Þór Aðalsteinssyni
Fornleifar á eyðidal: skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal, unnið af Ástu Hermannsdóttur
Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn, unnið af Gunnari Stein Valgarðssyni
Artic snakk, unnið af Eddu Jónu Gylfadóttur, Guðrúnu Björk Jónsdóttur, Helgu Björgu Jónasardóttur og Guðrúnu Hjörleifsdóttur

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru árlega veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Undanfarin ár hafa 4-6 verkefni verið tilnefnd til verðlaunanna og hlotið sérstaka viðurkenningu, en aðeins eitt verkefni hlotið sjálf forsetaverðlaunin. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og hafa síðan verið veitt á ári hverju við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Allir þeir nemendur sem skila inn lokaskýrslu fyrir auglýstan frest koma til greina við veitingu verðlaunanna.


  • Rannís
  • Rannís
<