Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Nýsköpunarsjóður námsmanna » Lokaskýrsla

Lokaskýrsla og yfirlýsing umsjónarmanns

Lokaskýrsla Nýsköpunarsjóðs námsmanna 

Skilafrestur á lokaskýrslu er föstudagurinn 23. september 2011 kl. 16:00.

Verkefni sem hljóta styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna teljast ekki fullunnin fyrr en nemandi hefur skilað lokaskýrslu til Rannís. Hefðbundin skýrsla er samantekt á rannsókn sumarsins með inngangi, meginmáli og kynningu á helstu niðurstöðum. Öllum lokaskýrslum þarf að fylgja yfirlýsing umsjónarmanns og fremst í hverri skýrslu þarf að vera stutt samantekt á rannsóknarverkefninu (,,abstract", ca 100-200 orð). Á forsíðu þarf að koma fram 1) heiti verkefnis, 2) nöfn námsmanna og umsjónarmanna, 3) nafn sjóðsins og ártal.

Lokaskýrslu skal skila, undirritaðri af umsjónarmanni og nemanda, í einu prentuðu eintaki (heftuðu saman eða með gormi), auk afrits á tölvutæku formi (á geisladiski sem rtf, pdf eða word-skjal). Lokaskýrslu má ekki skila með tölvupósti.

Hér eru leiðbeiningar um uppsetningu og efnistök lokaskýrslu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.

Hér er eyðublað fyrir yfirlýsingu umsjónarmanns.

Heimilisfang Rannís er: Laugavegur 13, 101 Reykjavík.

Skrifa skal skýrt á umslag: „Lokaskýrsla fyrir Nýsköpunarsjóð námsmanna".

Hægt er að sækja um frest á skilum lokaskýrslu vegna sérstakra aðstæðna og ber að sækja um frestinn skriflega með tölvupósti til sjóðsins þar sem fram koma rökstuddar ástæður þess að frestur skuli veittur.

Athugið að þær skýrslur sem berast eftir að skilafrestur er liðinn koma ekki til greina við tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands (jafnvel þótt frestur hafi verið veittur af Rannís).

Athugið að umsjónaraðilar og nemendur geta ekki tekið að sér ný verkefni eða sótt um styrki úr sjóðnum nema að lokaskýrslu hafi verið skilað vegna fyrri verkefna.


  • Rannís
  • Rannís
<