Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Nýsköpunarsjóður námsmanna » Nánar um Nýsköpunarsjóð námsmanna

Nánar um Nýsköpunarsjóð námsmanna

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Frá stofnun 1992 hefur sjóðurinn unnið sér nafn og gott orð fyrir vinnu mörg hundruð námsmanna og verkefna sem þeir hafa leyst af hendi fyrir tilstyrk sjóðsins.

Umsóknir um styrki skal meta með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífinu og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein. Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna. Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.

Nýsköpunarsjóður er í vörslu sjóðsstjórnar sem skipuð er af menntamálaráðherra. Sjóðsstjórn ákveður úthlutun styrkja á vori hverju.

Hverjir geta sótt um?
1) Háskólanemar í grunn- og meistaranámi.
2) Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir.

Kröfur til verkefna
Verkefni verður að uppfylla tvær meginkröfur eigi það að hljóta styrk. Í fyrsta lagi verður verkefnið að reyna á hæfni námsmanns og sjálfstæði í vinnubrögðum. Í öðru lagi þarf verkefni að hafa hagnýtt nýsköpunargildi fyrir atvinnulíf eða stuðla að fræðilegri nýsköpun í viðkomandi fræðigrein.

Styrkur og framvinda
Styrkveiting felst í því að sjóðurinn greiðir námsmanni mánaðarlega styrki en fyrirtæki eða viðkomandi umsjónaraðili sér fyrir aðstöðu og efniskostnaði. Sjóðurinn fylgist með framvindu verkefna yfir sumarið og umsjónaraðili ber ábyrgð á því að verkefni sé unnið samviskusamlega og lokaskýrslu skilað í lok sumars. Skili umsjónaraðili ekki skýrslu kemur hann ekki til greina við úthlutanir síðar.

Fjármögnun
Sjóðurinn er fjármagnaður með framlögum frá ríki (mennta- og menningarmálaráðuneyti) og Reykjavíkurborg.

Tengsl við atvinnulíf og samfélag
Mörg dæmi eru um að nýsköpunarverkefni hafi velt af stað viðameiri þróunarverkefnum innan fyrirtækja. Ungt fólk er oft djarft og frjótt í hugsun og fyrirtæki hafa verið tilbúin til að fjárfesta í hagkvæmnisathugun með aðstoð Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Oft eru það áhugasömustu nemendurnir sem sækjast eftir að vinnu við rannsóknir á sumrin. Vinna á vegum Nýsköpunarsjóðs hefur verið vettvangur fyrirtækja til að mynda tengsl við nemendur og oft hafa þau tengsl leitt til atvinnutilboða að námi loknu. Sjóðurinn er því einnig ákjósanlegur vettvangur fyrir nemendur til að kynnast framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins.

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður 1992. Rannís tók við umsýslu sjóðsins 8. júlí 2008.
Hér er reglugerð um sjóðinn.
Samkvæmt breytingu á reglugerð 26. janúar 2009 er háskólanemum á grunn- og meistarastigi heimilt að sækja um styrk úr sjóðnum.
Enskt heiti sjóðins er The Icelandic Student Innovation Fund.   


  • Rannís
  • Rannís
<