Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Nýsköpunarsjóður námsmanna » Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru árlega veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og hafa síðan verið veitt á ári hverju við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.


Allir þeir nemendur sem skila inn lokaskýrslu fyrir auglýstan frest koma til greina við veitingu verðlaunanna.
Árlega velur stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna um 20 verkefni sem unnin eru á árinu sem úrvalsverkefni. Af þeim eru svo 5-6 verkefni valin sem öndvegisverkefni og hljóta þau tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna byggir mat sitt á verkefnum á mati fagráða sjóðsins, sem eru fjögur: a) fagráð á sviði heilbrigðisvísinda, b) fagráð á sviði verkfræði, tæknivísinda og raunvísinda, c) fagráð á sviði náttúru- og umhverfisvísinda og d) fagráð á sviði hug- og félagsvísinda. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna er skipuð fulltrúum frá Rannís, Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Stúdentaráði Háskóla Íslands, Samtökum iðnaðarins og Reykjavíkurborg. Verðlaunaafhending Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands nú í ár fer fram á Bessastöðum 14. Febrúar 2012.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2011 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 23. febrúar. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Pantið áhrifin frá Móður jörð og var það unnið af Auði Ösp Guðmundsdóttur, Emblu Vigfúsdóttur og Katharinu Lötzsch frá Listaháskóla Íslands og Robert Peterssen frá Háskólanum í Gautaborg. Leiðbeinandi þeirra í verkefninu var Brynhildur Pálsdóttir.

Yfirlit yfir verðlaunahafa og verkefni sem hlotið hafa sérstakar viðurkenningar:

Verðlaunahafar myndNýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2011
Verðlaunin hlutu þrír nemendur Listaháskóla Íslands, þau Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir og Katharina Lötzsch, ásamt Robert Petersen frá Háskólanum í Gautaborg. Leiðbeinandi þeirra var Brynhildur Pálsdóttir. 

Fimm önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
MindGames: Hugþjálfunarleikir, unnið af Jóni Trausta Arasyni og Hamid Pourvatan úr HR og Kötlu Rós Völudóttur og Ragnari Má Nikulássyni úr Listaháskóla Íslands.
Vistland: Rannsókn á möguleikum sjálfbærni í íslenskum arkitektúr og húsagerð, unnið af Darra Úlfssyni, Björgvini Óla Friðgeirssyni, Kötlu Maríudóttur, Snorra Þór Tryggvasyni og Baldri Helga Snorrasyni úr Listaháskóla Íslands. Neðansjávarlágtíðnihljóðbylgjuaflgjafi, unnið af Jóni Val Valssyni, tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Umhverfiskostnaður sem hluti af reiknilíkanu jarðhitavirkjana, unnið af Kristrúnu Gunnarsdóttur, umhverfis- og verkfræðiskor Háskóla Íslands.
Vindhraðamælingar og sambreytni vinds á Íslandi, unnið af Jóni Blöndal, stærðfræðiskor og Teiti Birgissyni, iðnaðarverkfræðiskor Háskóla Íslands.

Ásgeir Bjarnason Nýskv.fors2010Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010
Verðlaunin hlaut Ásgeir Bjarnason fyrir verkefnið Súrefnis- og hjartsláttarnemi. Ásgeir stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi en var nemandi við Háskólann í Reykjavík þegar hann vann að verkefninu. Leiðbeinendur Ásgeirs voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Arfgeng heilablæðing, unnið af Birni Þór Aðalsteinssyni
Fornleifar á eyðidal: skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal, unnið af Ástu Hermannsdóttur
Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn, unnið af Gunnari Stein Valgarðssyni
Artic snakk, unnið af Eddu Jónu Gylfadóttur, Guðrúnu Björk Jónsdóttur, Helgu Björgu Jónasardóttur og Guðrúnu Hjörleifsdóttur

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2009
Verðlaunin hlutu Andri Yngvason, Bjarki Már Elíasson og Jóna Guðný Arthúrsdóttir fyrir verkefnið Gönguhermir.

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Stökklar og stökkbreytingar í erfðaefni mannsins, unnið af Martin Inga Sigurðssyni (hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar)
Bætibakteríur - Hin hliðin, unnið af Hugrúnu Lísu Heimisdóttur
Hvernig haga einstæðir foreldrar fæðingarorlofi?, unnið af Guðnýju Björk Eydal
Framleiðsla etanóls úr hýdrólýsötum með hitakærum bacterium, unnið af Máneyju Sveinsdóttur

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2008
Verðlaunin hlutu Arna Óskarsdóttir og Tinna Ósk Þórarinsdóttir fyrir verkefnið Rafskautanet fyrir fingurendurhæfi.

Fimm verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Gráa gullið, unnið af Sigurlaugu R. Sævarsdóttur
Pattern Finder - Greiningarforrit til munsturgreiningar, unnið af Gunnsteini Hall
ICCE - Icelandic Carbon Credit Exchange, unnið af Bergþóru Arnarsdóttur
Mælingar á þéttleikabreytingum í aftauguðum rýrum vöðvum, unnið af Guðfinnu Halldórsdóttur
Víxlflæði á súrefni milli æða í sjónhimnu manna, unnið af Agli Axfjörð Friðgeirssyni

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2007
Verðlaunin hlaut Martin Ingi Sigurðsson fyrir verkefnið: Áhrif aldurs á utangenamerki mannsins

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Geo-Breeze, unnið af Hildigunni Jónsdóttur og Valdimar Olsen.
Nýsköpun í sýndarverum, unnið af Hrafni Þorra Þórissyni.
Rafmagnsflugan, verkefni unnið af Steinþóri Bragasyni.
Þráðlaus mæling stökkkrafts, verkefni unnið af Guðfinnu Halldórsdóttur og Birni Ómarssyni

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2006
Verðlaunin hlutu Jón Steinar Garðarsson Mýrdal og Sigurður Örn Aðalgeirsson fyrir verkefnið: Sport Cool - Ný tækni til að lina þjáningar við íþróttameiðsl.

Þrjú verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
EVE-Mobile - Fjaðurvigtarviðmót á leikinn EVE-online unnið af Andra Mar Jónssyni og  Ágústi Hlyn Hólmgeirssyni.
Unicode tölvuletur fyrir íslensk og færeysk fræði unnið af Bjarka Má Karlssyni
Silikon sem burðarkerfi fyrir lífvirk efni unnið af Reyni Scheving

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2005
Verðlaunin hlutu Björn Björnsson og Gunnar Örn Erlingsson fyrir verkefnið: Öryggismál í mannþröng í miðbæ Reykjavíkur - hermun skyndilegrar rýmingar Miðbæjarins

Þrjú verkefni fengu sérstaka viðukenningu:
Nýting afgass háhitasvæða unnið af Steinari Yan Wang
Íslenskt lestrarpróf fyrir fyrsta til fjórða bekk unnið af Sigrúnu Sif Jóelsdóttur og Valgerði Ólafsdóttur
Notandi spyr notanda - nýtt atvinnutækifæri geðsjúkra unnið af Hörpu Ýr Erlendsdóttur og Valdísi Brá Þorsteinsdóttur.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2004
Verðlaunin hlutu fjórir nemendur úr tölvunarfræðideild HR fyrir rannsóknir sínar á meðhöndlun fyrirspurna í tónlistargagnagrunna. Nemendurnir eru Freyr Guðmundsson, Gunnar Einarsson, Jóhann Grétarsson og Ólafur Örvar Guðjónsson.

Þrjú verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Snýkjudýrasýkingar í hreindýrskálfum unnið af Berglindi Guðmundsdóttur
Möguleikar Íslands á sviði alþjóðlegrar bankastarfsemi unnið af Skúla Sveinssyni
Völd, tengsl og eðli nefnda, stjórna og ráða hjá hinu opinbera og fyrirtækja skráðum hjá Kauphöll Íslands - þátttaka kvenna unnið af Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2003
Verðlaunin hlaut Oddgeir Harðarson fyrir verkefni sitt: Mýlirfugreining.

Tvö verkefni fengu sérstaka viðukenningu:
Áhrif hjartaaðgerða á ungbörnum á virkni T-eitilfruma.
Hönnun á töskum:  Rósa E.R. Helgadóttir.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2002
Verðlaunin hlutu þeir Bergur Guðmundsson og Björn Gíslason fyrir verkefni sitt: Áframeldi þorsks. 

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðukenningu:
Notkun RFID-auðkenna í íslenskum landbúnaði: Benedikt Ingi Tómasson og Björn Brynjúlfsson.
Taugastjórnun á líkamsþyngd og fitubúskap: Páll Ísólfur Ólason.
Venjuleg kona - heimildaleikhús: Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors.
Samlagshlutafélög - nýr valkostur í íslensku viðskiptalífi: Grímur Sigurðsson.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2001
Verðlaunin hlaut Valtýr Stefánsson Thors fyrir verkefni sitt: Áhrif lýsis á ónæmiskerfið - þáttur leukotriena. 

Fimm verkefni hlutu sérstaka viðukenningu:
Hreinsibúnaður fyrir færibönd: Sæmundur Elíasson.
Keppt um traustið- reglur um verðbréfaviðskipti starfsmanna fjármálafyrirtækja fyrir eigin reikning: Jóhann Pétur Harðarson.
Kynþáttafordómar og kynslóðirnar - Rannsókn á viðhorfi þriggja kynslóða til innflytjenda á Íslandi: Haukur Agnarsson og Sigríður María Tómasdóttir.
Magn og uppspretta svifryks - Rannsókn á loftmengun í Reykjavík: Ylfa Thordarson.
Tengsl stökkla og stökkbreytimynsturs í erfðamengi mannsins: Hans Tómas Björnsson.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2000
Verðlaunin hlaut Hrafnkell Eiríksson fyrir verkefni sitt: Myndmat á æðum augnbotna. 

Fjögur verkefni fengu sérstaka viðukenningu:
Einelti á vinnustöðum: Lísbet Einarsdóttir og Pálína Benjamínsdóttir.
Hreinlæti í fiskiðnaði: Ármann Gylfason og Ásmundur Níelsson.
Kröfur EES samningsins um rökstuðning stjórnvaldsákvarðana: Bjarni Ólafsson og Margrét Einarsdóttir.
Vanýtt auðlind á Vesturlandi: Hrafnhildur Hannesdóttir.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 1999
Verðlaunin hlaut Harpa Birgisdóttir fyrir verkefni sitt: Fokgirni og bindieiginleikar foksands.

Fimm verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu:
Farandsýningin handritin heima: Laufey Guðnadóttir og Soffía Guðný Guðmundsdóttir.
Fræðileg handbók um menningartengda ferðaþjónustu: Áki Guðni Karlsson og Valdimar T. Hafstein.
Íshúðun: Arinbjörn Ólafsson og Þorsteinn Egilsson.
Rannsókn á íslensku tónlistararfi: Guðrún Laufey Guðmundsdóttir.
Rannsókn á samhengi milli arfgerða príongensins og riðusmits í einni riðuhjörð: Hjalti Már Þórisson.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 1998
Fyrstu verðlaun hlaut Brynhildur Sigurðardóttir fyrir verkefni sitt: Tengsl heimspeki og náttúrufræðikennslu í grunnskólum.

2. verðlaun
Rannsókn á biðlistum sjúkrahúsanna. Hvernig eru biðlistar í heilbrigðisþjónustunni uppbyggðir: Aðalheiður Sigursveinsdóttir.
3. verðlaun
Bestun flokkamarka fyrir loðnu og síld: Gísli Reynisson og Hálfdán Guðni Gunnarsson.

Þrjú verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu:
Leitað leiða til að kynna menningararfinn: Andri Snær Magnason og Sverrir Jakobsson.
Virk efni í sjávargróðri og sjávarfangi: Hans Tómas Björnsson.
Prófun á efnum úr íslenskum fléttum með tilliti til verkunar á krabbameinsfrumur og bólguviðbrögð: Gunnar Már Zoëga.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 1997
Fyrstu verðlaun hlutu þau Davíð Bjarnason, Erla Hlín Hjálmarsdóttir og Einar Skúlason fyrir verkefni sitt: Erlent ferðafólk í náttúru Íslands.

2. verðlaun
PB hitaveitulagnir: Ragnar Ólason efnafræðingur.
3. verðlaun
Rannsókn og flokkun Reykjavíkurbréfa frá 19. öld: Kristrún Halla Helgadóttir.

Þrjú verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu:
Falleg borg sem hefur allt sem þú þarfnast: Agla Huld Þórarinsdóttir, Jónas Gunnar Allansson, Lóa Birna Birgisdóttir og Sigrún Erla Egilsdóttir.
Ríkisútvarpið og íslensk menning, viðhorf og móttökur: Ásdís Jónsdóttir.
Flöktmælir: Kjartan Benediktsson

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 1996
Fyrstu verðlaun hlutu Kristján Guðni Bjarnason, Pétur Snæland og Rúnar Birgisson fyrir verkefni sitt: Ráðgjafarforrit fyrir vinnslustjóra.

2. verðlaun
Ferðaþjónusta í Strandasýslu - þjóðfræði: Jón Jónsson.
3. verðlaun
Notagildi pensillíns með breyttu skömmtunarmynstri gegn pensillín ónæmum pneumókokkum: Viðar Magnússon og Sóley Ómarsdóttir.


  • Rannís
  • Rannís
<