Umsókn og upplýsingar
Umsókn um styrk skal vera fyllt út á heimasíðu Rannís. Umsóknarfrestur fyrir styrkárið 2012 er 8 mars kl. 16:00.
Hægt er að sækja um með því að smella hér.
Athugið að bæði umsjónarmönnum og háskólanemum er heimilt að sækja um styrk úr sjóðnum. Hægt er að sækja um fyrir einstakling sverkefni eða hópverkefni.
Mat á umsóknum
Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna metur allar umsóknir sem berast sjóðnum fyrir auglýstan umsóknarfrest. Umsóknir eru metnar eftir eftirfarandi þáttum (sbr. reglugerð sjóðsins):
Formleg skilyrði:
- Leiðbeinandi verður að vera tilgreindur. Hafi hann áður leiðbeint í verkefni verður hann að hafa undirritað lokaskýrslu sem skilað var til NSN.
- Nemandi þarf að vera í grunn- eða meistarnámi.
- Verkefnið má ekki vera lokaverkefni nemanda.
- Verkefnið þarf að vera rannsóknar- og þróunarverkefni.
Við nánara mat á verkefnum er tekið mið af eftirfarandi þáttum:
- Mun það leiða til nýsköpunar (þekkingar og/eða tækni)?
- Hverjir eru möguleikar á hagnýtingu þess?
- Mun það stuðla að samstarfi háskóla, stofnana og fyrirtækja? (Ath. heimilt er að veita verkefnum forgang sem einnig eru styrkt af fyrirtækjum og stofnunum.
- Gefur það möguleika á sjálfstæðu framlagi nemanda?
Mikilvægt er að útskýra vel eftirfarandi liði í umsókninni:
- Markmið verkefnis/rannsóknar
- Aðferðafræði verkefnis/rannsóknar
- Verk- og tímaáætlun
- Möguleika á hagnýtingu
- Nýsköpunargildi
Styrkþegar
Þeir sem hljóta styrk frá sjóðnum fá tilkynningu í tölvupósti um miðjan apríl. Þar kemur fram hversu marga mannmánuði verkefnið hefur hlotið í styrk. Jafnframt fylgja leiðbeiningar um næstu skref. Tilkynningin er send skráðum umsjónarmönnum og nemendum. Það er mjög áríðandi að öll tölvupóstföng séu rétt færð inn í umsóknina.
Samningur
Allir styrkþegar þurfa að skrifa undir samning og afhenda/senda til NSN hjá Rannís. Eyðublöðin verður hægt að nálgast á heimasíðu Rannís. Frestur til að skila samningi rennur út 30. maí 2012.
Styrkgreiðslur
Fjöldi styrktra mánaða ræðst af umfangi og gæðum rannsóknarverkefnisins en hámark greiðslu frá NSN miðast við 3 mánaðargreiðslur til sama nemanda. Mánaðarleg styrkupphæð úr NSN er 170 þús. kr. pr. nemanda. Athugið að sjóðurinn getur veitt forgang verkefnum sem einnig eru styrkt af fyrirtækjum eða stofnunum sbr. reglugerð sjóðsins.
Greiðsla hvers mánaðar er lögð inn á bankareikning viðkomandi námsmanns. Upplýsingar um bankareikning þarf að tilgreina í samningi. Greitt er út fyrsta virka dag hvers mánaðar og lokagreiðsla fer fram við skil á lokaskýrslu.
Styrkurinn er ekki staðgreiðsluskyldur en hann er þó skattskyldur og má nánar lesa um rannsóknarstyrki á heimasíðu Ríkisskattstjóra www.rsk.is.
Lokaskýrsla
Skilafrestur á lokaskýrslu er föstudagurinn 21. september 2012.
| Leiðbeiningar vegna lokaskýrslu | Yfirlýsing umsjónarmanns |
Verkefni sem hljóta styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna teljast ekki fullunnin fyrr en nemandi hefur skilað lokaskýrslu til Rannís. Hefðbundin skýrsla er samantekt á rannsókn sumarsins með inngangi, meginmáli og kynningu á helstu niðurstöðum. Öllum lokaskýrslum þarf að fylgja yfirlýsing umsjónarmanns og fremst í hverri skýrslu þarf að vera stutt samantekt eða útdráttur á rannsóknarverkefninu, u.þ.b. 200-250 orð að lengd. Á forsíðu þarf að koma fram 1) heiti verkefnis, 2) nöfn námsmanna og umsjónarmanna, 3) nafn sjóðsins og ártal.
Undirritaðri lokaskýrslu skal skila í einu prentuðu eintaki, heftuðu saman eða með gormi, auk afrits á tölvutæku formi.
Heimilisfang sjóðsins er: Nýsköpunarsjóður námsmanna, Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík.
Skrifa skal skýrt á umslag: „Lokaskýrsla fyrir Nýsköpunarsjóð námsmanna".
Hægt er að sækja um frest á skilum lokaskýrslu vegna sérstakra aðstæðna og ber að sækja um frestinn skriflega með tölvupósti til sjóðsins þar sem fram koma rökstuddar ástæður þess að frestur skuli veittur.
Athugið að þær skýrslur sem berast eftir að skilafrestur er liðinn koma ekki til greina við tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands, jafnvel þótt frestur hafi verið veittur af NSN.
Athugið að umsjónaraðilar og nemendur geta ekki tekið að sér ný verkefni eða sótt um styrki úr sjóðnum nema að lokaskýrslu hafi verið skilað vegna fyrri verkefna.

English


