Beint á leiðarkerfi vefsins

Rafræn umsókn Nýsköpunarsjóðs námsmanna

Vinsamlegast athugið vandlega eftirtalin atriði áður en þið hefjið rafræna skráningu:

  • Leiðbeinandi verður að vera tilgreindur. Hins vegar er heimilt að senda inn umsókn(ir) þar sem nemendur eru ekki tilgreindir.
  • Ef nemandi er ekki tilgreindur er nauðsynlegt að fylla út upplýsingar um leiðbeinanda (liður nr. 5 í umsókn) og vista til þess að stofna umsókn.
  • Fjöldi styrktra mánaða ræðst af umfangi og gæðum rannsóknarverkefnisins en hámark greiðslu frá NSN miðast við 3 mánaðargreiðslur til sama nemanda.
  • Mánaðarleg styrkupphæð úr NSN er 170 þús. kr. pr. nemanda.
  • Allar upphæðir skal skrá í þúsundum króna.
  • Notið hvorki punkta né kommur þegar upphæðir eru skráðar. Nota má punkt (en ekki kommu) þegar einkunnur eru skráðar.
  • Ef umsækjandi vill skrá sig inn í umsóknarkerfi Rannís undir kennitölu og veflykli fyrirtækis en ekki einstaklings má finna upplýsingar um hvernig það er gert hér.  
  • Tenging við kerfið rofnar (timeout) ef engin breyting er gerð í einhvern tíma, engar upplýsingar glatast þó ef þess er vandlega gætt að vista eftir hvern lið. Ef slíkt hendir þurfa notendur að skrá sig inn aftur.
  • Gætið þess vandlega að vista eftir hvern lið! 
  • Leiðbeiningar fyrir rafræna skráningu umsókna.

 

Umsókn


  • Rannís
  • Rannís
<