Úthlutanir
Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur jafnan þótt spennandi kostur í tengslum við sumarvinnu, bæði fyrir háskólanema sem hafa hugmyndir að sjálfstæðum rannsóknarverkefnum og sérfræðinga sem ráða vilja til sín háskólanema í sumarstörf.
Sjóðnum berast að jafnaði 300-600 umsóknir á ári og er styrkhlutfallið almennt u.þ.b. 25-45%.
Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 487 umsóknir fyrir sumarið 2011 fyrir um 700 háskólanema en umsóknarfresturinn rann út þann 11. mars.
Alls var sótt um 350 milljónir króna úr sjóðnum en til úthlutunar voru 86 milljónir. Stjórn sjóðsins styrkir 132 verkefni (alls 510 mannmánuði), eða 27% umsókna. Sum verkefnanna, sem styrkt eru, hljóta færri mannmánuði í styrk en sótt var um.
Hér má nálgast upplýsingar um úthlutunina 2011.
|
Ár |
Fjöldi umsókna |
Styrkt verkefni |
Hlutfall |
|
2003 |
386 |
161 |
41,7% |
|
2004 |
386 |
141 |
36,5% |
|
2005 |
272 |
141 |
51,8% |
|
2006 |
277 |
145 |
52,3% |
|
2007 |
252 |
106 |
42,1% |
|
2008 |
187 |
79 |
42,2% |
|
2009 |
566 |
129 |
22,8% |
|
2010 |
603 |
255 |
42,3% |
| 2011 | 487 | 132 | 27% |

English


