Rannsóknanámssjóður
16.6.2009
Úthlutun úr Rannsóknarnámssjóði 2009
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra verkefna fyrir árið 2009; 94 milljónum króna var úthlutað til bæði doktors- og meistaraverkefna.
Alls bárust 109 umsóknir um almennan styrk úr Rannsóknarnámssjóði að þessu sinni og voru 25 þeirra styrktar eða 22,9% (fjöldi). Sótt var um röskar 563 milljónir króna en um 94 milljónum króna var veitt eða 16,8% (upphæð). Meðalupphæð umsókna var um 5,1 milljón króna en meðalupphæð styrkja nú er rétt um 3,8 milljónir króna.
Alls bárust 45 umsóknir um styrk til meistaranáms og voru 11 þeirra styrktar eða 24,4% (fjöldi). Sótt var um rétta 101 milljón króna en 9,2 milljónum króna var veitt eða 9,1% (upphæð). Meðalupphæð umsókna til meistaranáms var 2,2 milljónir króna en styrkupphæð til meistaranema nemur að þessu sinni 840 þús. kr. eða fjórum mannmánuðum á hvert verkefni.
Hér er listi yfir þau verkefni sem hlutu styrk.


English


