Rannsóknanámssjóður
25.3.2011
Mikil sókn í Rannsóknarnámssjóð
Rannsóknarnámssjóði bárust alls 145 umsóknir um almennan styrk og þrjár um FS-styrk en umsóknarfrestur í sjóðinn rann út í mars 2011.
Af 148 umsóknum eru 116 vegna doktorsverkefna (78,2%) en 32 vegna meistaraverkefna (21,8%). Af 148 umsækjendum eru 91 kona (61,2%) og 57 karlar (38,8%). Úthlutun úr sjóðnum mun liggja fyrir um miðjan júní.


English


