Rannsóknanámssjóður
1.2.2012
Rannsóknarnámssjóður - auglýst eftir umsóknum 2012
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna styrkársins 2012. Umsóknarfrestur rennur út 15. mars 2012 (kl. 16:00).
Auglýst er eftir umsóknum um tvenns konar styrki en umsækjendum er bent á að lesa reglur og leiðbeiningar um sjóðinn áður er hafist er handa við að semja umsókn. Allar umsóknir eru rafrænar.
Almennir styrkir
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir almenna styrki úr sjóðnum 2012. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til rannsóknartengds framhaldsnáms sem stundað er við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki.
Doktorsnemar geta sótt um styrk til allt að þriggja ára en meistaranemar geta sótt um styrk til vinnu að meistaraverkefni í allt að 4 mánuði. Við mat á umsóknum er vísindalegt gildi rannsóknarverkefnisins lagt til grundvallar. Að auki er horft til árangurs umsækjanda í námi og rannsóknum, sem og virkni leiðbeinanda.
FS-styrkir
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknarnámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir. Árið 2012 verður einn umsóknarfrestur fyrir FS-styrki, sá sami og fyrir almenna styrki.
Athugið að allar umsóknir skulu vera á ensku.
Við úthlutun 2012 miðast fjárhæð styrkja til doktorsnema við 280 þús. kr. á mánuði og fjárhæð styrkja til meistaranema við 220 þús. kr. á mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðlaug Þóra Kristjánsdóttir, gudlaug@rannis.is, sími 515 5800.


English


