Nánar um Rannsóknarnámssjóð
Hlutverk Rannsóknarnámsjóðs er að veita styrki til rannsóknartengds framhaldsnáms við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki, hvorttveggja í námi á Íslandi og erlendis.Rannsóknarnámsjóður var stofnaður 1993 og á hann sér nú grundvöll í lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til rannsóknartengds framhaldsnáms á grundvelli reglna sem menntamálaráðherra setur (nr. 16/2008).
Samkvæmt 8. grein laga nr. 3/2003 gefur stjórn sjóðsins út úthlutunarreglur eigi síðar en sex vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest.
Almennir styrkir
Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknartengdu framhaldsnámi og skal tilhögun þess uppfylla Viðmið um æðri menntun og prófgráður, sem mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út, en fer að öðru leyti eftir lögum um háskóla, nr. 63/2006, reglum einstakra deilda og eftir almennum reglum háskóla. Doktorsnemar geta sótt um styrk til allt að þriggja ára en meistaranemar geta sótt um styrk til vinnu að meistaraverkefni í allt að 12 mánuði. Rannsóknaverkefni skal að minnsta kosti vera 30e (60 ECTS). Við mat á umsóknum er vísindalegt gildi rannsóknarverkefnisins lagt til grundvallar, auk árangurs umsækjanda í námi og rannsóknum og virkni leiðbeinanda.
Fyrirtækja- og stofnanastyrkir (FS-styrkir)
Markmið FS-styrkja er að efla samvinnu milli stofnana, fyrirtækja og háskóla. Fyrirtæki og stofnanir skilgreina fyrirfram hvaða fagsvið skuli styrkja. Styrkurinn verður til við samfjármögnun fyrirtækis/stofnunar og Rannsóknarnámsjóðs. Tilhögun námsins skal uppfylla Viðmið um æðri menntun og prófgráður, sem menntamálaráðuneytið gefur út, en fer að öðru leyti eftir lögum um háskóla, nr. 63/2006, reglum einstakra deilda og eftir almennum reglum háskóla.



