Beint á leiðarkerfi vefsins

Rafræn umsókn Rannsóknarnámssjóðs

Vinsamlegast athugið vandlega eftirtalin atriði áður en þið hefjið rafræna skráningu:
(Tengill í rafrænt umsóknarkerfi neðst á síðunni).

Með umsókn skulu vera eftirfarandi fylgiskjöl (ella telst umsókn ekki styrkhæf):

1) Verkefnislýsing skal ekki vera lengri en 10 blaðsíður að viðbættri forsíðu og heimildaskrá (1,5 línubil, 12 punkta letri) og skipta í eftirfarandi kafla, röð og heitum þeirra skal ekki breyta:
  a. Staða þekkingar er verkefnið byggir á
  b. Vísindagildi verkefnis og eðli þeirrar nýju þekkingar sem afla skal
  c. Lýsing á aðferðum sem beita á í rannsóknum og úrvinnslu, verk- og tímaáætlun
  d. Samstarf í verkefninu (innlent/erlent)
  e. Ávinningur og væntanlegur afrakstur
  f. Áætluð birting niðurstaðna
2) Skjöl sem votta námsferil nemanda
3) Staðfesting frá háskóla um inngöngu í rannsóknartengt framhaldsnám
4) Feril- og ritaskrá umsækjanda
5) Feril- og ritaskrá aðalleiðbeinanda
6) Feril- og ritaskrá meðleiðbeinanda
  • Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku svo að mögulegt sé að senda umsóknir í mat erlendis. Undanþágur eru veittar frá þessari meginreglu ef birtingar á viðkomandi fræðasviði einskorðast við íslenska útgáfu. Í þeim tilvikum skal umsækjandi fá leiðbeiningar hjá starfsmönnum RANNÍS.
  • Allar upphæðir skal skrá í þúsundum króna.
  • Notið hvorki punkta né kommur þegar upphæðir eru skráðar.
  • Ef umsækjandi vill skrá sig inn í umsóknarkerfi Rannís undir kennitölu og veflykli fyrirtækis en ekki einstaklings má finna upplýsingar um hvernig það er gert hér.  
  • Tenging við kerfið rofnar (timeout) ef engin breyting er gerð í einhvern tíma, engar upplýsingar glatast þó ef þess er vandlega gætt að vista eftir hvern lið. Ef slíkt hendir þurfa notendur að skrá sig inn aftur.

Umsókn


  • Rannís
  • Rannís
<