Fagráð Rannsóknasjóðs
Fagráð, sem hvert er skipað sjö einstaklingum með víðtæka reynslu af rannsóknum, leggja faglegt mat á allar nýjar umsóknir um styrki úr Rannsóknasjóði og skila sjóðsstjórn umsögn um hverja umsókn fyrir sig. Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs skipar fagráð fyrir 2011-2012. Upplýsingar um skipan fagráða hér.
Fagsviðin eru eftirfarandi:
Að minnsta kosti tveir erlendir sérfræðingar meta hverja umsókn. Fagráð kynna sér allar umsóknir og afgreiða hverja umsókn með rökstuddri, skriflegri greinargerð (umsögn) og forgangsraða umsóknum á grunni hins faglega mats.
- Áður en fagráð ganga frá umsögnum til stjórnar Rannsóknasjóðs ræða formenn þeirra á sameiginlegum fundi sérstök álitamál sem kunna að hafa komið upp.
- Til viðbótar hinu faglega mati, sem fagráð skila, skal stjórn Rannsóknasjóðs miða umfjöllun sína við úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs sem er samþykkt af vísindanefnd og almennar áherslur Vísinda- og tækniráðs.
- Áður en stjórn Rannsóknasjóðs gengur endanlega frá styrkveitingum ræðir hún úthlutunina á fundum með formönnum fagráða.
- Samkvæmt 4. grein laga nr. 3 frá 2003 sæta ákvarðanir stjórnar Rannsóknasjóðs um styrkveitingu eða höfnun ekki stjórnsýslukæru.
- Að loknu úthlutunarferli fá umsækjendur svar í tölvupósti ásamt afriti af umsögn fagráðs og mati ytri sérfræðinga.
Spurningum varðandi einstök fagráð skal beina til umsjónarmanna fagráða.
Vinsamlega athugið að umsækjendur skulu ekki undir nokkrum kringumstæðum hafa samband við fagráðsfólk varðandi umsóknir í matsferli.

English


