Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Rannsóknasjóður » Fréttir og verkefnalok

Rannsóknasjóður

6.7.2007

Rannsóknasjóður og Tækjasjóður umsóknarfrestur 1. október

Stjórn Rannsóknasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Rannsóknasjóð og Tækjasjóð með umsóknarfrest 1. október 2007.
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Með hugtakinu vísindarannsóknum er átt við allar tegundir rannsókna; grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir.
Rannsóknasjóður veitir þrenns konar styrki með umsóknafrest 1. október 2007.
  • Verkefnisstyrki
  • Öndvegisstyrki
  • Rannsóknastöðustyrki

 

Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur sem hlutu styrk til verkefna árið 2007 með áætlun um framhald á árinu 2008 skulu senda ársskýrslu til sjóðsins fyrir 10. janúar 2008.
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna.
Nánari upplýsingar um sjóðina, leiðbeiningar og umsóknareyðublöð verða aðgengileg 15. ágúst nk. á heimasíðu Rannís.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
<