Rannsóknasjóður
17.3.2009
Kynning Rannsóknasjóðs í Ráðhúsinu föstudaginn 20. mars
Dagskrá
15:00 Ávarp Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra
15:10 Guðrún Nordal, prófessor og formaður stjórnar Rannsóknasjóðs, kynnir nýja úthlutun fyrir styrkárið 2009 og áherslur í starfsemi sjóðsins
15:30 Hannes Jónsson, prófessor, Reiknisetur fyrir hönnun efna og íhluta (nýtt öndvegisverkefni 2009)
15:45 Vilmundur Guðnason, prófessor, Breytingar í stærð og samsetningu skella í hálsæðavegg og tengsl orsakaþátta (nýtt öndvegisverkefni 2009)
16:00 Sýning á nokkrum verkefnum sem njóta stuðnings Rannsóknasjóðs (opin til kl. 18:00)
Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað styrkjum til nýrra rannsóknaverkefna fyrir styrkárið 2009; um 314 milljónum króna var úthlutað í þrjár styrktegundir; öndvegisstyrki (alls 4), rannsóknastöðustyrki (alls 5) og verkefnastyrki (alls 42).
- Alls bárust 237 umsóknir í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2009 og var 51 þeirra styrkt eða 21,5% (fjöldi).
- Sótt var um ríflega 1,3 milljarða króna en um 314 milljónum króna veitt eða 23,8% (upphæð).
- Meðalupphæð umsókna var um 5,5 milljónir króna en meðalupphæð styrkja nú er ríflega 6,1 milljón króna.
Til samanburðar má geta þess að fyrir styrkárið 2008 bárust 241 umsókn og var 71 þeirra styrkt eða 30% (fjöldi). Þá var sótt um tæpan milljarð en rúmum 303 milljónum veitt eða um 30% (upphæð). Meðalupphæð umsókna var þá um 3,9 milljónir króna en meðalupphæð styrkja um 4,2 milljónir króna.


English


