Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Rannsóknasjóður » Fréttir og verkefnalok

Rannsóknasjóður

20.3.2009

Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði - lok verkefnis

Markmiðið var í fyrsta lagi að kortleggja íslenskan bótarétt, almannatryggingakerfið og samspil bótakerfa. Í öðru lagi átti að greina réttarstöðu bótaþega og hvort íslenskur bótaréttur væri á réttri leið út frá sjónarhóli bótaþega og hugmyndum um réttaröryggi.
Verkefnisstjóri var Guðmundur Sigurðsson, Háskólanum í Reykjavík.

Heiti verkefnis: Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði
Verkefnisstjóri: Guðmundur Sigurðsson
Rannsóknartími: 3 ár
Styrkur samtals: 6,8 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 050618

Í upphafi árs 2005 fékkst styrkur úr Rannsóknasjóði vegna rannsóknarinnar: „Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði." Að rannsókninni stóðu Ragnhildur Helgadóttir og Guðmundur Sigurðsson við Háskólann í Reykjavik,  Tryggingastofnun ríkisins og sérfræðingar sem þar starfa.   Markmiðið var í fyrsta lagi að kortleggja íslenskan bótarétt, almannatryggingakerfið og samspil bótakerfa. Í öðru lagi átti að greina réttarstöðu bótaþega og hvort íslenskur bótaréttur væri á réttri leið út frá sjónarhóli bótaþega og hugmyndum um réttaröryggi. Rannsókninni er nú lokið.

Rannsóknin leiddi í ljós að lítið hefur verið fjallað um almannatryggingar út frá lögfræðilegu sjónarhorni. Því var miklum tíma eytt í rannsóknir beinlínis á því réttarsviði. Þessar áherslur leiddu m.a. til útgáfu bókarinnar Almannatryggingar og félagsleg aðstoð, Guðmundur Sigurðsson og Ragnhildur Helgadóttir, JPV útgáfa, 2007.

Þá styrkti rannsóknin enn frekar þá skoðun að rannsóknir á sviði bótaréttar þurfi að snúa að öllum stoðum hans og að við rannsóknir á einangruðum sviðum bótaréttar og breytingar á þeim verði jafnframt að gæta að tengslum við heildarmynd bótaréttarins. Þá skipta tengsl opinbers réttar og einkaréttar einnig miklu máli.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
<