Rannsóknasjóður
8.2.2006
Rannsóknasjóður úthlutar yfir 500 m.kr.
Hafliði P. Gíslason formaður stjórnar Rannsóknasjóðs kynnti úthlutun sjóðsins á blaðamannafundi í dag. Nýir verkefnisstyrkir eru 65, þrír nýir öndvegisstyrkir og fimm rannsóknastöðustyrkir.
Veittir eru í ár 3 nýir öndvegisstyrkir að heildarupphæð 21,5 m.kr., 65 nýir verkefnisstyrkir að heildarupphæð 158,3 m.kr. og 5 nýir rannsóknastöðustyrkir (Post.doc-styrkir) að heildarupphæð 18,0 m.kr. eða samtals 73 nýir styrkir að upphæð samtals 197,8 m.kr. (þar af 7,4 m.kr. frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins, 1,0 m.kr. úr styrktarsjóði Sigurðar Jónssonar og Helgu Sigurðardóttur og 5,1 m.kr. úr Tækjasjóði). Meðalupphæð nýrra öndvegisstyrkja er 7,2 m.kr., verkefnisstyrkja um 2,3 m.kr. og rannsóknastöðustyrkja 3,6 m.kr. Lægsti styrkur til nýrra verkefna er 500 þús.kr. (verkefnisstyrkur) og sá hæsti 8,0 m.kr. (öndvegisstyrkur).
Fyrir liggur tillaga um að Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrki 10 verkefni 2006 í samstarfi við Rannsóknasjóð, 5 framhaldsverkefni og 5 ný verkefni. Stjórn Framleiðnisjóðs hefur ekki tekið formlega ákvörðun um úthlutun, en tillagan hljóðar upp á samtals 14,1 m.kr. úr Framleiðnisjóði.
Sjá lista yfir úthlutun hér.
Sjá samantekt um úthlutun sjóðsins hér.


English


