Slóð:

Sjóðir » Rannsóknasjóður » Stjórn

Stjórn

Stjórn Rannsóknasjóðs

Stjórn Rannsóknasjóðs er skipuð af mennta- og menningarmálaráðherra til þriggja ára í senn samkvæmt tilnefningu vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs. Formaður vísindanefndar er einnig formaður stjórnar Rannsóknasjóðs.

Samkvæmt 8. grein laga nr. 3 frá 2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir gefur stjórn sjóðsins út reglur um umsóknir, meðferð þeirra og úthlutun. Reglurnar eru samþykktar af vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs.

Rannís fer með daglega umsýslu Rannsóknasjóðs. Eiríkur Stephensen sérfæðingur og ritari stjórnar Rannsóknasjóðs svarar almennum fyrirspurnum varðandi sjóðinn en spurningum varðandi einstök fagráð má einnig beina til umsjónarmanna fagráða.

Stjórnarfundir eru haldnir reglulega, yfirleitt fyrsta mánudag í hverjum mánuði nema í júní, júlí og ágúst. Formleg erindi þurfa að berast stjórninni a.m.k. viku fyrir auglýstan fund ef það á að taka þau fyrir á fundinum. Heimilisfangið er:

Rannsóknasjóður
Prófessor Guðrún Nordal, formaður stjórnar
c/o Eiríkur Stephensen
Laugavegi 13
101 Reykjavík

Vinsamlegast athugið að umsækjendur eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að hafa samband við stjórnarmenn eða fagráðsmenn meðan mat umsókna fer fram. Öllum fyrirspurnum og ábendingum skal beina til Rannís. Brot á þessu ákvæði getur leitt til þess að umsókn verði vísað frá.


  • Rannís