Umsækjendur
Til þess að geta sótt um styrk til Rannsóknasjóðs þurfa umsækjendur að uppfylla ákveðin skilyrði um styrkhæfi sem eru nánar skilgreind í reglum um sjóðinn. Verkefnisstjóri skal hafa lokið rannsóknanámi við viðurkennda háskóla og hafa reynslu af rannsóknum.
Sé sótt um styrk til rannsóknar sem er hluti af rannsóknanámi skal verkefnisstjórn vera í höndum leiðbeinenda. Sami einstaklingur getur sótt um fleiri en einn styrk sem verkefnisstjóri. Rannsóknasjóður veitir þó aldrei fleiri en einn styrk til sama verkefnis.
Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku, svo að mögulegt sé að senda umsóknir í mat erlendis.
Áður en hafist er handa við að fylla út umsókn og umsóknargögn er nauðsynlegt að kynna sér reglur og leiðbeiningar. Umsækjendur eru beðnir að athuga að öllum ófullgerðum umsóknum er vísað frá.





English
