Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar » Nánar um sjóðinn

Nánar um Rannsóknastyrki Bjarna Benediktssonar

Hinn 30. apríl 2008 voru 100 ár liðin frá fæðingu Bjarna Benediktssonar lagaprófessors og forsætisráðherra. Til að minnast þeirra tímamóta var ákveðið að stofna til styrkveitinga á sviði lögfræði og sagnfræði.

Árlega eru veittir styrkir til lögfræði- og sagnfræðirannsókna. Annars vegar eru veittir rannsóknarstyrkir á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar með það að markmiði að efla rannsóknir á þeim sviðum lögfræðinnar, sem snerta innviði stjórnskipunarinnar og réttaröryggi borgaranna gagnvart leyfisvaldi og eftirliti stjórnvalda. Hins vegar eru veittir rannsóknarstyrkir á sviði hag- og stjórnmálasögu 20. aldar til okkar daga með það að markmiði að efla rannsóknir og dýpka skilning á umbreytingum í íslensku efnahagslífi, stjórnmálum og utanríkismálum á 20. öld.

Þriggja manna úthlutunarnefnd um lögfræðirannsóknir er skipuð Páli Hreinssyni hæstaréttardómara, formanni, Björgu Thorarensen lagaprófessor og Birni Bjarnasyni ráðherra. Varamaður er Ragnhildur Helgadóttir, prófessor.

Þriggja manna úthlutunarnefnd um sagnfræðirannsóknir er skipuð Önnu Agnarsdóttur prófessor í sagnfræði, formanni, Matthíasi Johannessen rithöfundi og Sólrúnu Jensdóttur sagnfræðingi. Varamaður er Valur Ingimundarson prófessor.

Úthlutunarnefndir ákveða úthlutunarreglur, fara yfir umsóknir og annast úthlutun styrkja. Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) annast rekstur og umsýslu sjóðsins og fylgja sömu reglum um opin og fagleg vinnubrögð og viðhöfð eru við rekstur annarra sjóða.

Ákvörðun úthlutunarnefndar um það hvaða rannsóknarverkefni skuli hljóta styrki byggist á faglegu mati á gæðum rannsóknarverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna verkefninu. Berist ekki umsóknir sem uppfylla framangreind skilyrði verður styrkjum ekki úthlutað.

Styrkþegi skal geta þess að rannsóknarverkefni hans hafi hlotið styrk úr sjóðnum Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar í inngangi eða formála, þegar rannsóknin er opinberlega birt.

Vinir og samherjar Bjarna Benediktssonar ásamt fjölskyldu hans hafa sameinast um að afla fjár til að standa undir styrkveitingunum og er að því stefnt að um fimm ára verkefni verði að ræða. Verður haft samband við fólk og fyrirtæki, sem kann að vilja leggja þessu framtaki lið og opnaður söfnunarreikningur.

Um það hefur samist milli Borgarskjalasafns og afkomenda Bjarna Benediktssonar, að skjöl hans og myndir verði varðveitt í safninu. Í tengslum við þetta samkomulag hefur verið opnuð vefsíðu í tengslum við safnið, þar sem birt eru gögn tengd Bjarna Benediktssyni, upplýsingar um sjóðinn Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar og efniságrip ritgerða styrkþega. Síðan er hér.


  • Rannís
  • Rannís
<