Reglur um úthlutun
Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar til lögfræði- og sagnfræðirannsókna
1. gr.
Árlega verða veittir sex rannsóknarstyrkir til lögfræði- og sagnfræðirannsókna á árunum 2008-2012 í minningu Bjarna Benediktssonar lagaprófessors og forsætisráðherra.
Þrír rannsóknarstyrkir verða veittir árlega á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar, einn að fjárhæð 1.000.000 kr. og tveir að fjárhæð 500.000 kr.
Þrír rannsóknarstyrkir verða veittir árlega á sviði hag- og stjórnmálasögu 20. aldar til okkar daga, einn að fjárhæð 1.000.000 kr. og tveir að fjárhæð 500.000 kr.
2. gr.
Þriggja manna úthlutunarnefnd um lögfræðirannsóknir er skipuð Páli Hreinssyni hæstaréttardómara, Björgu Thorarensen lagaprófessor og Birni Bjarnasyni ráðherra. Varamaður er Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor.
Þriggja manna úthlutunarnefnd um sagnfræðirannsóknir er skipuð Önnu Agnarsdóttur prófessor í sagnfræði, Matthíasi Johannessen rithöfundi og Sólrúnu Jensdóttur sagnfræðingi. Varamaður er Valur Ingimundarson prófessor.
Úthlutunarnefndir ákveða nánar úthlutunarreglur, fara yfir umsóknir og annast úthlutun styrkja í minningu Bjarna Benediktssonar.
3. gr.
Hinn 21. desember 2007 skulu Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar auglýstir til úthlutunar í fyrsta skipti og skal umsóknarfrestur vera einn mánuður. Skal við það miðað að úthlutun fari fram eigi síðar en þremur mánuðum eftir að umsóknarfresti lýkur.
4. gr.
Ákvörðun úthlutunarnefndar um það hvaða rannsóknarverkefni skulu hljóta styrki skal byggjast á faglegu mati á gæði rannsóknarverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna verkefninu.
Berist ekki umsóknir sem uppfylla framangreind skilyrði verður styrkjum ekki úthlutað það árið.
5. gr.
Styrkþegi skal geta þess að rannsóknarverkefni hans hafi hlotið styrk úr sjóðnum Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar í inngangi eða formála þegar rannsóknin er opinberlega birt.
6. gr.
Styrkþegi skal að loknu styrktímabili gera grein fyrir meginniðurstöðum rannsókna sinna skriflega og er miðað við að sá texti verði birtur opinberlega.

English


