Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Skattívilnun

Skattívilnun nýsköpunarfyrirtækja

  

  Opnað verður fyrir rafrænt skráningareyðublað 9. ágúst 

Umsækjendur geta undirbúið umsókn með því að afla nauðsynlegra gagna sem þarf að senda inn (sjá að neðan) 

 

Í desember 2009 samþykkti Alþingi tvenn lög með það að markmiði að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja, efla nýsköpun, rannsóknir og þróunarstarf.  Annars vegar lög nr. 152/2009, um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki og hins vegar lög nr. 137/2009, um breytingar á lögum um tekjuskatt.  Samkvæmt lögunum verður viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum annars vegar veittur réttur til skattfrádráttar vegna kostnaðar við rannsóknar-og þróunarstarf í nýsköpunarverkefnum.  Hins vegar er hvatt til fjárfestinga í viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum gegn skattafslætti til fjárfesta.

Rannís vinnur að mótun umsókna- og verklagsferla, ásamt því að draga fram nauðsynlegar upplýsingar um framkvæmd laganna.  Verður það birt á heimasíðu Rannís, ásamt því að verða aðgengilegt með öðrum hætti.

Skattafsláttur vegna fjárfestinga:

Ef sótt er um staðfestingu vegna skattafsláttar þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram í umsókn:

  • Heiti fyrirtækis/umsækjanda, kennitala, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang og heimasíða.
  • Allar upplýsingar um stjórnendur; stjórn, stjórnarformann og framkvæmdastjóra.
  • Lýsing á nýsköpunarstarfseminni (þ.m.t. lýsing á afurðum eða öðru sem talið er falla undir nýsköpun og uppfylli skilgreiningar), lýsing á rannsóknum og þróunarstarfi.
  • Fjalla um markað sem nýsköpun beinist að og um markaðslegan ávinning.
  • Með fylgi ársreikningar sl. þriggja ára, sýna þarf fram á að á tveimur af síðustu þremur árum hafi rannsóknar-og þróunarkostnaður numið meira en 1,5% af rekstrartekjum, eða -kostnaði, eftir því hvor fjárhæðin er hærri, eða að varið hafi verið a.m.k. 40 milljónum króna til rannsókna og þróunarstarfs á ári undanfarin tvö ár.
  • Ef rannsóknar-og þróunarkostnaður er ekki skýrt tilgreindur í ársreikningi skal gera grein fyrir honum með gögnum staðfestum af endurskoðanda.
  • Sýna þarf fram á vel skilgreinda verkferla, þ.e. skipulag þar sem gert er ráð fyrir þróunarstarfi í starfslýsingu starfsmanna sem hafa þjálfun og reynslu af rannsóknarstörfum og að aðstaða sé til starfsins.
  • Sýna þarf fram á að hluthafafundur hafi tekið ákvörðun um aukningu hlutafjár skv. V. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög og V. kafla laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög.
  • Sýna þarf fram á að upplýsingagjöf til fjárfesta verði tryggð til þess að vernda fjárfesta og hvernig.
  • Tiltaka þarf kostnað ef keypt hefur verið rannsóknarvinna af öðrum viðurkenndum fyrirtækjum, háskólum eða stofnunum. Leggja þarf fram fullnægjandi gögn um það.
  • Ef um samstarfsverkefni er að ræða með öðrum umsækjendum um staðfestingu á því að teljast nýsköpunarfyrirtæki, þá sé tilgreint hvaða samstarfsaðila um er að ræða.

Fyrirtæki sem hyggjast fá staðfestingu vegna skattafsláttar geta nú sent Rannís umsóknir þess efnis, Rannís ber að afgreiða umsóknir innan tveggja mánaða frá því að gildar umsóknir berast.

Umsóknir má senda á umsoknir@rannis.is , í efnislínu (subject) komi fram nafn fyrirtækis/umsækjanda.

Skattfrádráttur vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar:

RANNÍS vinnur að því að skilgreina nánar umsóknaferli varðandi skattfrádrátt og tekur ekki við umsóknum um það fyrr en síðar.

Hvatt er til þess að fyrirtæki sem hyggjast sækja um staðfestingu vegna skattfrádráttar komi sér upp verklagsreglum og verkbókhaldi í samráði við endurskoðendur sína sem fyrst.

Þegar sótt er um staðfestingu vegna skattfrádráttar þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:

  • Heiti fyrirtækis/umsækjanda, kennitala, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang og heimasíða.
  • Allar upplýsingar um stjórnendur; stjórn, stjórnarformann og framkvæmdastjóra.
  • Lýsing á nýsköpunarstarfsemi fyrirtækisins (þ.m.t. afurðum eða öðru sem talið er falla undir nýsköpun og uppfylli skilgreiningar), lýsing á rannsóknum og þróunarstarfi.
  • Fjalla um markað sem nýsköpun beinist að og um markaðslegan ávinning.
  • Sýna fram á að hugmynd að virðisaukandi vöru/þjónustu og viðskiptaáætlun sé vel skilgreind.
  • Sýna fram á með gögnum, sem staðfest eru af endurskoðanda, að varið verði a.m.k. 5 milljónum króna til rannsókna og þróunarstarfs á 12 mánaða tímabili. Gera grein fyrir kostnaði vegna hvers rannsókna-og þróunarverkefnis og að honum sé haldið aðgreindum frá öðrum rekstrarkostnaði.
  • Gera þarf grein fyrir styrkjum frá opinberum aðilum til sama nýsköpunarverkefnis og umsókn nær til.
  • Sýna þarf fram á að starfsmenn hafi þjálfun, menntun eða reynslu á því sviði sem hugmynd að virðisaukandi vöru eða þjónustu byggist á.
  • Tilgreina kostnað ef keypt hefur verið rannsóknavinna af öðrum viðurkenndum fyrirtækjum, háskólum eða stofnunum. Leggja þarf fram fullnægjandi gögn um það.
  • Ef um samstarfsverkefni er að ræða með öðrum umsækjendum um staðfestingu þess að teljast nýsköpunarfyrirtæki, þá sé tilgreint hvaða samstarfsaðila um er að ræða.

Að öðru leyti er vísað í framangreind lög.  Rannís áskilur sér rétt til þess að kalla eftir frekari upplýsingum en fram koma í umsóknum og fylgigögnum.  Tekið er fram að staðfesting þess að fyrirtæki teljist nýsköpunarfyrirtæki og hafi viðurkenningu á rannsókna- og þróunarverkefni gildir frá 1. janúar 2010 og á við um almanaksárið.


Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Skattívilnun

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta