Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Skattívilnun » Rafræn skráning umsóknar

Rafræn skráning umsóknar

Umsóknin er rafræn í tveimur köflum og er hver þeirra er stuttur og einfaldur í skráningu. Eftir hvern lið þarf að vista til að geyma upplýsingarnar.  Í þeim liðum sem hafa Lista sem sama númer er skráð og vistað eins oft og þarf og má sjá skráninguna í Lista undir viðkomandi númeri.

Til að hefja skráningu og sækja ókláraða umsókn undir „Umsóknir í vinnslu“ þarf að skrá 1.1 Umsjónarmann umsóknar og 1.2 Fyrirtæki, eftir það má loka skráningu og koma inn síðar. Umsóknir í vinnslu birtast neðst á síðunni sem opnast þegar og búið er að skrá sig inn gegnum www.island.is.

Vinsamlegast athugið vandlega eftirtalin atriði:

  • Allar upphæðir skal skrá í þúsundum króna.
  • Notið hvorki punkta né kommur þegar upphæðir eru skráðar. Nota má punkt (en ekki kommu) þegar ársverk eru skráð.
  • Tenging við kerfið rofnar (timeout) ef engin breyting er gerð í einhvern tíma, engar upplýsingar glatast þó ef þess er vandlega gætt að vista eftir hvern lið. Ef slíkt hendir þurfa notendur að skrá sig inn aftur.
  • Kerfið opnast í enskum ham. Vinsamlegast smellið á íslenska fánann neðst til vinstri. Þegar komið er inn í vistaða umsókn opnast kerfið í þeim ham sem síðast var vistað í.
  • Gætið þess vandlega að vista eftir hvern lið!
  • Ef umsækjandi vill skrá sig inn í umsóknarkerfi Rannís undir kennitölu og veflykli fyrirtækis en ekki einstaklings má finna upplýsingar um hvernig það er gert hér

Lögin og reglugerðirnar ásamt frekari upplýsingum má finna í handbók um skattívilnun.   

Umsókn

               


  • Rannís
  • Rannís
<