Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Skattívilnun » Skattafsláttur vegna fjárfestinga

Skattafsláttur vegna fjárfestinga

Ef sótt er um staðfestingu vegna skattafsláttar þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram í umsókn:

  • Heiti fyrirtækis/umsækjanda, kennitala, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang og heimasíða.
  • Allar upplýsingar um stjórnendur; stjórn, stjórnarformann og framkvæmdastjóra.
  • Lýsing á nýsköpunarstarfseminni (þ.m.t. lýsing á afurðum eða öðru sem talið er falla undir nýsköpun og uppfylli skilgreiningar), lýsing á rannsóknum og þróunarstarfi.
  • Fjalla um markað sem nýsköpun beinist að og um markaðslegan ávinning.
  • Með fylgi ársreikningar sl. þriggja ára, sýna þarf fram á að á tveimur af síðustu þremur árum hafi rannsóknar-og þróunarkostnaður numið meira en 1,5% af rekstrartekjum, eða -kostnaði, eftir því hvor fjárhæðin er hærri, eða að varið hafi verið a.m.k. 40 milljónum króna til rannsókna og þróunarstarfs á ári undanfarin tvö ár.
  • Ef rannsóknar-og þróunarkostnaður er ekki skýrt tilgreindur í ársreikningi skal gera grein fyrir honum með gögnum staðfestum af endurskoðanda.
  • Sýna þarf fram á vel skilgreinda verkferla, þ.e. skipulag þar sem gert er ráð fyrir þróunarstarfi í starfslýsingu starfsmanna sem hafa þjálfun og reynslu af rannsóknarstörfum og að aðstaða sé til starfsins.
  • Sýna þarf fram á að hluthafafundur hafi tekið ákvörðun um aukningu hlutafjár skv. V. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög og V. kafla laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög.
  • Sýna þarf fram á að upplýsingagjöf til fjárfesta verði tryggð til þess að vernda fjárfesta og hvernig.
    Tiltaka þarf kostnað ef keypt hefur verið rannsóknarvinna af öðrum viðurkenndum fyrirtækjum, háskólum eða stofnunum. Leggja þarf fram fullnægjandi gögn um það.
  • Ef um samstarfsverkefni er að ræða með öðrum umsækjendum um staðfestingu á því að teljast nýsköpunarfyrirtæki, þá sé tilgreint hvaða samstarfsaðila um er að ræða.

          

Fyrirtæki sem hyggjast fá staðfestingu vegna skattafsláttar geta nú sent Rannís umsóknir þess efnis, Rannís ber að afgreiða umsóknir innan tveggja mánaða frá því að gildar umsóknir berast.

                 


  • Rannís
  • Rannís
<