Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækjasjóður

Tækjasjóður

Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma og fer stjórn Rannsóknasjóðs jafnframt með stjórn Tækjasjóðs. Framlag Tækjasjóðs greiðir að hámarki 75% af kostnaði við fjárfestinguna án virðisaukaskatts.

Við úthlutun úr Tækjasjóði er öðru fremur tekið mið af eftirfarandi atriðum:

  • Að tækin séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða að tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
  • Að tækin séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
  • Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum séu raunhæfar.

Næsti umsóknarfrestur er klukkan 16:00 15. mars 2012

 


Starfsmenn Tækjasjóðs

Eiríkur Stephensen
sérfræðingur
515 5819

Hallgrímur Jónasson
forstöðumaður
515 5800


  • Rannís
  • Rannís
<