Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækjasjóður » Umsóknir

Umsóknir

Athugið vandlega eftirtalin atriði áður en þið hefjið rafræna skráningu:

  • Fylla þarf út alla reiti í 1.1 Verkefnisstjóri og vista til þess að stofna umsókn. Umsókn verður að stofna til þess að hægt sé að vista aðrar upplýsingar.
  • Ef ætlunin er að fylla umsókn út í nokkrum áföngum þarf að gæta þess að fylla út alla reiti innan viðkomandi síðu áður en vistað er.
  • Eftirtalin viðhengi skulu fylgja umsókn: ferilskrár umsækjenda, verðtilboð frá framleiðenda/seljanda tækis og yfirlýsing um tryggt mótframlag.
  • Í lið 1.8 er hvert tæki skráð sérstaklega. Ef sótt er um fleiri en eitt tæki þarf að vista hverja færslu og velja aftur flipa 1.8. Upplýsingar úr þessum lið matast yfir í lið 2.1 þar sem kostnaður við hvert tæki er skráður án VSK í þúsundum króna (liður 2.1) og reiknast þá í lið 2.2 sjálfkrafa framlag Tækjasjóðs miðað við 75%. Hægt er að breyta hlutfalli Tækjasjóðs ef vill. Einnig birtist mótramlag umsækjanda án og með VSK en síðari talan er sú upphæð sem umsækjandi þarf að tryggja í mótframlag.
  • Notið eingöngu heilar tölur við skráningu á kostnaði (flipi 2.1) og þegar hlutfall (%) styrkupphæðar úr Tækjasjóði er skráð (flipi 2.2). 
  • Ef umsækjandi vill skrá sig inn í umsóknarkerfi Rannís undir kennitölu og veflykli fyrirtækis en ekki einstaklings má finna upplýsingar um hvernig það er gert hér.
  • Tenging við kerfið rofnar (timeout) ef engin breyting er gerð í einhvern tíma, engar upplýsingar glatast þó ef þess er vandlega gætt að vista eftir hvern lið. Ef slíkt hendir þurfa notendur að skrá sig inn aftur.
  • Notið fána neðst til vinstri til að skipta um tungumál. Heimilt er að skila umsóknum á íslensku og ensku. Þegar komið er inn í vistaða umsókn opnast kerfið í þeim ham sem síðast var vistað í.

Umsókn


  • Rannís
  • Rannís
<