Tækniþróunarsjóður - forverkefni
Hægt er að sækja um stuðning við forverkefni hjá Tækniþróunarsjóði. Tilgangur forverkefna er að undirbúa og kanna forsendur nýrra verkefna og/eða undirbúa verkefni sem falla undir verksvið Tækniþróunarsjóðs. Enginn sérstakur umsóknarfrestur er tilgreindur. Umsóknir eru að öllu jöfnu afgreiddar þrisvar á ári. Stjórn sjóðsins mun leggja mat á fýsileika umsókna með reglulegu millibili. Forverkefnin sem studd verða geta verið þrenns konar:
Undirbúningur nýsköpunar- og tækniþróunarverkefna
Að kanna tæknilegar og/eða viðskiptalegar forsendur nýrra áhugaverðra hugmynda t.d. hvort einkaleyfi eða aðrar hindranir komi í veg fyrir markaðssetningu.
Könnun á markaðslegu gildi uppfinninga og nýsköpunarverkefna
Að kanna hvort t.d. ný uppfinning eða frumleg hönnun gæti leitt til árangurs á markaði.
Öflun erlendra samstarfsaðila
Að styðja fyrirtæki o.fl. sem vinna að nýsköpun til að byggja upp fyrirtækjanet um samstarf á sviði rannsókna og þróunar og síðar markaðssetningar erlendis.
Framlag til forverkefnis getur að hámarki orðið 1.000 þús. kr. gegn jafnháu framlagi umsækjanda og verkefninu skal ljúka innan 6 mánaða frá samþykkt stjórnar sjóðsins. Gert er ráð fyrir að heildarframlög til forverkefna geti orðið allt að 5-10% af heildarfjármagni Tækniþróunarsjóðs á hverjum tíma.
Umsóknir skal senda til Rannsóknamiðstöðvar Íslands Laugavegi 13, 101 Reykjavík/ Tækniþróunarsjóðs á sérstökum eyðublöðum.

English


