Tækniþróunarsjóður
19.5.2012
Efling samkeppnissjóða
Rannís vekur athygli á fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu þar sem fram kemur að auka eigi fjárveitingar í Rannsóknasjóð og Tækniþróunarsjóð, auk þess sem leggja eigi fé til markáætlunar á sviði rannsókna og nýsköpunar.
9.5.2012
Hvatar og ferli - verkefnislok
CRI hefur nýlega tekið í notkun fyrstu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum sem getur framleitt 1,7 milljón lítra á ári af vistvænu metanóli úr koltvísýringsútblæstri og endurnýjanlegri orku frá jarðvarmaorkuverinu í Svartsengi.
Verkefnisstjóri var Oddur Ingólfsson, Carbon Recycling International ehf.
8.5.2012
Frá fótfestu til framtíðar - verkefnislok
Markmið verkefnisins var að auka sókn á erlenda markaði og náðist sá árangur sem að var stefnt og viðskiptavinum fjölgar jafnt og þétt.
Verkefnisstjóri var Þórarinn Stefánsson, Mobilitus ehf.
7.5.2012
Dynex með leiðara - verkefnislok
Þróunarferlinu er nú lokið og höfuðlínukapallinn, sem ber nafnið Dynex Data, er tilbúinn sem söluvara og er þegar kominn í notkun á tveim skipum og hefur reynst vel fram að þessu.
Verkefnisstjóri var Hjörtur Erlendsson, Hampiðunni hf.
30.4.2012
Stýranlegir toghlerar - forverkefni lokið
Toghlerarnir eru hannaðir á þá vegu að hægt er að breyta afstöðu á innri byggingu þeirra þannig að sjóflæðinu í gegn um þá er stjórnað.
Verkefnisstjóri var Atli Már Jósafatsson, Pólar togbúnaður ehf.
13.4.2012
Skólapúlsinn - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Í Skólapúlsinum er meðal annars metin ánægja af lestri, þrautseigja í námi, sjálfstraust, einelti, samband nemenda við kennara, samsömun við nemendahópinn og virk þátttaka í tímum.
Verkefnisstjóri var Almar Miðvík Halldórsson, Skólapúlsinum ehf.
13.4.2012
Tæknilausnir sem auðvelda kræklingarækt í kafi á opnu hafi - verkefnislok
Akkerisborinn, sem hannaður og smíðaður var, byggir á nýrri bortækni sem er einstök hvað varðar áreiðanleika festinga á sjávarbotni með litlum tilkostnaði.
Verkefnisstjóri var Hilmar Erlingsson, Tæknistáli ehf.
10.4.2012
Sjálfvirkt ferilvöktunarkerfi - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Aðalmarkmið verkefnisins var að þróa og markaðssetja alsjálfvirkt ferilvöktunarkerfi.
Verkefnisstjóri var Erlingur Brynjúlfsson, Controlant ehf.
4.4.2012
Stöðugleiki og seigjustýring steypu - verkefnislok
Meginmarkmið verkefnisins var að hanna nýtt tæki, Segrometer-4SCC sem gæti mælt stöðugleika ferskrar steypu með tilliti til aðskilnaðar.
Verkefnisstjóri var Ólafur H. Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.


English


