Tækniþróunarsjóður
26.6.2009
Styrkir til örlíftækni - nanomedicine
Rannís auglýsir eftir umsóknum í EuroNanoMed samstarfsverkefni innan 7RÁ ESB.
Íslenskir verkefnahlutar verða styrktir af Tækniþróunarsjóði og skulu umsækjendur skila sérumsókn til Tækniþróunarsjóðs jafnframt umsókn í heildarverkefnið. Umsóknafrestur Tækniþróunarsjóðs og EuroNanoMed er 1. September 2009. EuroNanoMed er ERA-net samstamstarf rannsóknasjóða í Evrópu um að styrkja fjölþjóðleg samstarfsverkefni á sviði „nanomedicine".
Nánari upplýsingar um EuroNanoMed og skilyrði fyrir íslenska umsækjendur veita: Már Másson, mmasson@hi.is og Katrín Valgeirsdóttir, katrin@rannis.is
Upplýsingar varðandi umsókn í EuroNanoMed og þá rannsóknasjóði sem taka þátt í samstarfinu er að finn á heimsíðu EuroNanoMed (http://www.rannis.is/admin/news/www.euronanomed.net)


English


